Rannsakar birtingarmyndir kynjanna í námsbókum 1. júlí 2011 14:52 Staðlaðar kynjaímyndir hafa verið áberandi í námsbókum sem annars staðar, en nú á að gera formlega rannsókn á stöðunni Mynd úr safni
Jafnréttisstofa hefur ráðið meistaranema í sálfræði til að gera útttekt á námsbókum í grunnskóla út frá birtingarmyndum kynjanna. Kristín Jónsdóttir hefur verið ráðin í sumarstarf til Jafnréttisstofu. Hún mun taka út námsbækur í samfélagsfræði á miðstigi grunnskóla út frá birtingamyndum og orðræðu um stúlkur og drengi, karla og konur. Í kjölfar úttektarinnar verður gerð skýrsla um niðurstöðurnar, ætluð yfirvöldum skólamála, kennurum og öðrum sem áhuga hafa. Þetta kemur fram á vef Jafnréttisstofu. Þar segir að allt frá 1976 hefur verið ólöglegt að hanna og nota kennsluefni sem mismunar kynjunum á einhvern hátt, en mjög lítil umræða hefur verið um hvort og hvernig hefur verið fylgst með því að þetta lagaákvæði sé virt og hvort eldra kennsluefni er tekið til mats að þessu leyti og þá hvernig. Í vetur sendi Jafnréttisstofa mennta-og menningarmálaráðuneytinu bréf þar sem ráðuneytið var minnt á eftirlitsskyldu þess varðandi útgáfu námsbóka samkvæmt 23. grein jafnréttislaga. Tilefni bréfsins var útgáfa nýlegra námsbóka í samfélagsfræði sem endurspegla mjög karllæga sýn á sögu Íslendinga þar sem kvenna er varla getið hvað þá að einhverjar séu nafngreindar. Þegar fleiri námsbækur voru skoðaðar kom í ljós að umfjöllun í samfélagsfræði viðheldur hefðbundnum hugmyndum um hlutverk kynjanna, þar sem karlar eru virkir gerendur í samfélaginu á meðan konur eru lítt sýnilegar og bundnar við heimilið. Þess má geta að Lára Hanna Einarsdóttir gerði óformlega útttekt á birtingarmyndum og hlutverkum kynjanna í námsbókum þegar hún var við nám í íslenskum fræðum við Háskóla Íslands árið 1993. Í bloggfærslu Láru Hönnu má kynna sér verkefnið. Færslan er skrifuð á síðasta ári þar hvetur hún til þess að gerð sé ítarleg útttekt á þessum málumSjá vef Jafnréttisstofu.
Mest lesið Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi Innlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Innlent Fleiri fréttir Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Sjá meira