Vill kalla saman þing til að klára frumvarp um Drekasvæðið Boði Logason skrifar 3. júlí 2011 16:27 Tryggvi Þór Herbertsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins „
Það var bara klúður hjá ríkisstjórninni að setja þetta ekki á dagskrá áður en þingi lauk í sumar," segir Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann hefur ásamt, Jóni Gunnarssyni og Gunnari Braga Sveinssyni, óskað eftir að boðað verði sem fyrst til fundar í iðnaðarnefnd til að ræða stöðu útboðsmála vegna olíuleitar á Drekasvæðinu. Þeir óska eftir að orkumálastjóri og fulltrúar iðnaðarráðuneytisins mæti á fundinn. Tryggvi segir að málið sé eitt af þremur mikilvægum málum sem verði að ljúka sem fyrst, en hin frumvarpin fjalla um hluta atvinnuleysisbóta og séreignalífeyrissparnaðinn. Hann telur ástæðu til að kalla saman þing og vill gera það helst sem allra fyrst. Það er forseti Alþingis, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, sem ákveður hvort að þing verður kallað saman. Hann segir að það hafi gleymst að fara með málið í gegnum þingið áður en því lauk um miðjan júní en hann segir að það hafi það hafi ríkt mikil samstaða um að breyta lögum um olíuleit sem allra fyrst. „Orkumálastjóri hefur lýst miklum áhyggjur yfir því að þetta tefji útboðið á útboðinu á Drekasvæðinu. Þeir eru búnir að vera í gríðarlega miklum undirbúningi og voru meðal annars á ráðstefnu úti í Noregi núna í byrjun júní, þar sem var verið að kynna þetta útboð og annað slíkt. Þá var mikill áhugi fyrir því, að hans sögn," segir Tryggvi. Hann segir að þingmennirnir vilji fá gott yfirlit frá orkumálastjóra og iðnaðarnefnd um málið og sjá „hversu miklu máli þetta skiptir þessi lagasetning. Hvort það nægi að þetta verði sett í lög í september eða hvort við ætlum að kalla saman þingið út af þessu og hinum málunum tveimur." Hann segir alveg ljóst að málið fari í gegnum þingið þegar það kemur aftur saman í september en telur að kalla eigi þing saman sem allra fyrst. „Ég tel að það sé full ástæða til að kalla saman þingið út af þessum málum og ástandinu og þjóðfélaginu eins og það er - ég tel að það sé engin sérstök ástæða að þingið sé í fríi." Áður en þingi lauk töluðu Sjálfstæðismenn mikið um kvótafrumvarpið og mikill tími fór í að ræða það. Ríkisstjórnin tókst ekki að koma málinu í gegnum þingið áður en því lauk. Aðspurður hvort að Sjálfstæðismenn geti kannski kennt sjálfum sér um að frumvarpið um útboðsmál á Drekasvæðinu hafi ekki farið í gegn vegna þess að þeir töluðu mikið síðustu dagana áður en þingi lauk, segir Tryggvi að það hefði aðeins tekið hálftíma að koma frumvarpinu í gegn. „Það er engin afsökun, í staðinn fyrir að hætta klukkan fjögur hefðum við hætt hálf fimm," segir hann að lokum.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira