Íslenski boltinn

Willum: Strákarnir eiga hrós skilið

Stefán Árni Pálsson skrifar


„Þetta var frábær leikur og við fengum óskabyrjun sem við náum ekki að nýta okkur," sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflavíkur, í kvöld.

„Við misstum aðeins tökin á leiknum þegar við komumst yfir og reyndum strax að halda fengnum hlut í staðin fyrir að vera örlítið meira afslappaðri".

„Við leyfum þeim samt sem áður að skora full einföld mörk í leiknum. Þeir skora síðan þriðja markið, þá héldu allir að leikurinn væri búinn en mitt lið neitaði að gefast upp. Strákarnir eiga hrós skilið fyrir að gefast ekki upp og ná að minnka muninn og með smá heppni hefðum við ná að jafna leikinn," sagði Willum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×