Fleiri leita á fíknigeðdeild Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 4. júlí 2011 18:30
Aðsókn að fíknigeðdeild Landspítalans hefur aukist um allt að tíu prósent á árinu. Geðlæknir telur það til marks um vaxandi vímuefnavanda í þjóðfélaginu. Strax fyrstu mánuðina eftir hrunið jókst álag á bráðamóttöku geðdeildar Landspítalans töluvert eða um 20%. Fljótlega dró aftur úr komum en nú virðist sem að þeim sem leita á deildina sé að fjölga á ný. Páll Matthíasson, geðlæknir og framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítala-Háskólasjúkrahús, segir að þar á bæ hafi menn séð hægt vaxandi aðsókn undanfarið. Sérstaklega á bráðamóttökunni og göngudeildinni en einnig mjög hægt vaxandi aðsókn að almennum geðdeildum. Í rauninni sé það ekkert á við það sem þeir áttu von á. Það vekur hins vegar athygli að dálítið hraðari aukning er í aðsókn á fíknigeðdeildina og virðist vímuefnavandinn vera aukinn. Á fíknigeðdeild Landspítala er rekin sérhæfð þjónusta fyrir einstaklinga þar sem geðraskanir og misnotkun vímuefna fara saman. Páll segir að fjölgun sjúklinga þar hafi verið þó nokkur eða á bilinu sjö til tíu prósent milli ára, núna þrjú ár í röð. Töluvert meiri aukning er á göngudeildinni þar eða sem nemur tuttugu til þrjátíu prósent. Páll segir erfitt að segja til um af hverju álag á fíknigeðdeildina er að aukast. Margt bendi til þess að vímuefnavandinn sé vaxandi vandamál í þjóðfélaginu. Þegar aðstæður séu erfiðar þá leitar fólk jafnvel leiða til að flýja raunveruleikann og kannski sé þetta ein af leiðunum, það er að nota vímuefni.
Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Erlent Fleiri fréttir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Sjá meira