Álverð hækkaði áttfalt meira en nýja orkuverðstengingin Kristján Már Unnarsson skrifar 5. júlí 2011 18:30
Álverð hefur hækkað um þrjátíu prósent á því eina ári sem liðið er frá því Landsvirkjun samdi við álverið í Straumsvík um að afnema tengingu raforkuverðs við verðþróun á áli. Það er áttfalt meiri hækkun en á bandarísku neysluvísitölunni, sem tekin var upp í staðinn sem verðtenging, en hún hefur hækkað um 3,6 prósent á síðustu tólf mánuðum. Raforkusamningar álveranna hérlendis voru í aldarþriðjung almennt tengdir verðþróun áls í heiminum. Fyrir ári varð stefnubreyting þegar Landsvirkjun og Rio Tinto Alcan sömdu um að tengja orkuverð við bandarísku neysluvísitöluna. Ekki er hægt að fullyrða hvort annar aðilinn hafi haft tilefni til að brosa breiðar þegar forstjórar fyrirtækjanna undirrituðu nýja samninginn í júní í fyrra þar sem efnisatriði samningsins fást ekki uppgefin en hann tók gildi í haust. Frá því samningurinn var hins vegar undirritaður hefur álverð í heiminum rokið upp, hækkað úr rúmlega 1.900 dollurum tonnið upp í 2.500 dollara tonnið, en þetta er um 30 prósenta hækkun. Bandaríska neysluvísitalan, nýja orkuverðsviðmið Landsvirkjunar, hefur hins vegar hækkað um 3,6 prósent á síðustu tólf mánuðum. Forstjóri Landsvirkjunar, Hörður Arnarson, segir breytinguna engu að síður skynsamlega, og ekki aðeins að mati Landsvirkjunar, heldur einnig að mati ráðgjafa fyrirtækisins, fjármálastofnana og matsfyrirtækja. Þá sé Landsvirkjun enn með mjög háa álverðstengingu og um 50 prósent af tekjum fyrirtækisins séu tengd álverði. Aðalatriðið sé þó hversu hátt orkuverðið sé og umtalsverð hækkun hafi fengist með nýju samningunum í fyrra. Hörður bendir á að álverð hafi sögulega ekki náð að fylgja bandarísku neysluvísitölunni og verið að jafnaði um hálfu prósenti lægra. Allt bendi því til að þetta sé því betra. Auk þess hafi tilgangurinn verið sá að draga úr áhættu fyrirtækisins en hún hafi verið of mikil. Þegar bent er á að álverð hafi hækkað margfalt meira en bandaríska neysluvísitalan á þessu eina ári segir Hörður að þrátt fyrir það sé Landsvirkjun betur sett þar sem samið hafi verið um betra verð.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira