Lífið

Drottning úthafanna á leið til landsins

Seglskipið Statsraad Lehmkuhl, stærsta og glæsilegasta þrímastra skip heimsins er á leið til Reykjavíkurhafnar en það lagði úr höfn í Noregi þann fjórða júlí. Skipið kemur til Reykjavíkur 9. júlí og verður það opið gestum við bryggjuna á Miðbakka á sunnudaginn kemur frá klukkan 12 til 15.

Þeir sem heillast af skipinu geta kynnst því enn betur því möguleiki er á að sigla með því frá Reykjavík aftur til Björgvinjar í Noregi og taka þátt í störfum áhafnarinnar.

Nánari upplýsingar er að finna hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.