Vilja frekar snúa frá fjallinu Boði Logason skrifar 7. júlí 2011 14:00 Hekla Mynd/gva „
Við höfum fengið nokkrar afbókanir en það er bara fólk sem er hætt við að koma til Íslands eftir að hafa séð fréttir að Hekla sé tilbúin að gjósa," segir Óli Már Aronsson, hjá Heklusetrinu á Leirubakka. Fjallað hefur verið um það bæði í fjölmiðlum hér á landi og erlendis að Hekla sé tilbúin til að gjósa því mikil þensla hefur verið undir fjallinu síðustu ár. Jarðeðlisfræðingar segja að ef jörð fer að skjálfa tekur það einungis einn til tvo klukkutíma fyrir kvikuna að fara upp á yfirborðið. Nokkrir ferðamenn hafa afbókað bókanir sínar á hótelinu síðustu daga og segir Óli Már að margir séu áhugasamir um gosið. En þó ekki allir. „Fyrir heimamenn er þetta náttúrlega ekki neitt neitt en ég finn fyrir því hjá erlenda starfsfólkinu okkar að það heldur að þetta sé eitthvað hræðilegt." Á Leirusetrinu er hægt að skoða safn um Heklugos en þar einnig hótel og segir Óli Már að nokkrir viðskiptavinir óttist að gos hefjist á næstu dögum. „Við erum með hótel og önnur hliðin snýr að Heklu og hinn helmingurinn frá fjallinu. Það er ein og ein taugaveikluð kona sem er búin að biðja um að fá að snúa frá fjallinu. Þó að það sé nú eftirsóknarverðara að sjá fjallið," segir Óli Már í léttum dúr. Sjálfur segist hann ekki hafa neina hugmynd um hvort að fjallið fari að gjósa en tekur fram að það hafi verið tilbúið að gjósa í þrjú til fjögur ár. „Maður getur ekkert sagt um það - það hefur verið talað um að það sé að koma gos síðustu ár en það hefur aldrei neitt gerst," segir hann að lokum.
Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis Innlent Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Innlent Fleiri fréttir „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í Miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent