„Forsætisráðherra sagði ekki satt og rétt frá“ Hafsteinn Hauksson skrifar 30. júní 2011 11:00
Ríkisendurskoðun telur að svör forsætisráðherra hafi gefið ófullnægjandi mynd af kostnaði ráðuneyta við aðkeypta ráðgjöf frá starfsmönnum Háskólans. Þingmaður sem óskaði eftir upplýsingunum segir alvarlegt að forsætisráðherra segi ekki satt frá. Ríkisendurskoðun vann skýrslu um kostnað ráðuneyta við aðkeypta þjónustu þáverandi starfsmanna félagsvísindasviðs Háskóla Íslands á árunum 2007 til 2010. Það var forsætisnefnd alþingis sem óskaði eftir skýrslunni að beiðni Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, en hann taldi að svar forsætisráðherra við fyrirspurn hans um sama efni hefði verið rangt. Í skýrslu ríkisendurskoðunar kemur fram að upphafleg svör forsætisráðuneytisins hafi verið ófullnægjandi. Guðlaugur Þór fagnar skýrslunni og segir hana sýna fram á mikilvægi þess að þingið hafi eftirlit með framkvæmdavaldinu. Hann kallar skýrsluna þó áfellisdóm yfir forsætisráðherra. „Það þurfti Ríkisendurskoðun til að fá réttar upplýsingar," segir Guðlaugur. „Það er auðvitað mjög alvarlegt að þegar þingmenn spyrja framkvæmdavaldið um einstaka hluti, þá fái þeir ekki réttar upplýsingar. Það er það sem gerist í þessu tilfelli. Það er ekki fyrr en ríkisendurskoðun gerir sína skýrslu að við fáum að vita hvað er rétt í málinu." Í skýrslunni kemur fram að í svari forsætisráðuneytisins hafi ekki verið gerð grein fyrir greiðslum sem runnu til félaga í eigu starfsmanna félagsvísindasviðs, en það hafi verið stærstu mistök ráðuneytisins. Þar hafi komið í ljós umtalsverðar greiðslur sem ekki var getið í svari forsætisráðherra. Þá hafi svarið ekki tekið til stundakennara, eða þeirra starfsmanna sem höfðu verið í ráðningarsambandi við ráðuneytin, heldur eingöngu fastráðinna starfsmanna félagsvísindasviðs sem þáðu verktakagreiðslur hjá ráðuneytunum. „Forsætisráðherra sagði ekki satt og rétt frá. Það hlýtur að vera afskaplega alvarlegt," segir Guðlaugur. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur raunar fram að stofnunin hafi ekki ástæðu til að ætla að upplýsingum hafi vísvitandi verið leynt, en forsætisráðuneytið fagnar því að það komi fram með skýrum hætti. Ríkisendurskoðun segir að bæta þurfi yfirsýn yfir aðkeypta þjónustu ráðuneyta, og telur jafnframt að notkun á launakerfi ríkisins til greiðslu fyrir sérfræðiþjónustu orka tvímælis. Forsætisráðuneytið hafnar því að yfirsýn skorti, en fellst á að fjármálaráðuneytið þurfi að setja samræmdar reglur um notkun launakerfisins.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Sjá meira