Íslenski boltinn

Kristján: Styrkir trú mína á strákunum

Stefán Árni Pálsson á Vodafonevellinum skrifar
„Það er komið það eðli í þetta lið að gefast ekki upp og það sá maður í kvöld,“ sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari Vals, eftir leikinn í kvöld.



„Frammistaða leikmanna heilt yfir var í fínu lagi í kvöld og menn lögðu sig virkilega mikið fram eftir að við lentum einum færri. Eftir að við jöfnum leikinn þá losnar um ákveðna spennu hjá leikmönnunum og strákarnir nýttu sér það og náði að innbyrða sigur".

„Við þjálfararnir erum virkilega ánægðir með þann karakter sem liðið sýndi og kvöld og það styrkir bara þá trú sem við höfum á þessum strákum“.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×