Íslenski boltinn

Arnar Sveinn: Maður æfir baki brotnu fyrir svona augnablik

Stefán Árni Pálsson á Vodafonevellinum skrifar
„Maður er í þessu fyrir svona sigra,“ sagði Arnar Sveinn Geirsson, leikmaður Vals, eftir sigurinn gegn Víkingum í kvöld. Valsmenn unnu 2-1 en þeir gerðu sigurmarkið á lokaandartaki leiksins.



„Það eru svona atvik  sem búa til þetta augnablik sem maður æfir baki brotnu fyrir, við sýndum frábæran karakter og þetta var alveg frábær sigur“.



„Eftir að við misstum mann útaf þá héldum við áfram að spila okkar bolta og létum hann ganga vel á milli manna. Mér fannst markið frá Víkingum koma alveg gegn gangi leiksins og því voru þetta algjörlega sanngjörn úrslit“.



„Svona sigur á eftir að efla liðið mikið sem er gott þar sem við eigum erfiðan útileik í næstu umferð gegn Keflvíkingum“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×