So You Think-stjörnurnar koma til Íslands næstu helgi 28. maí 2011 11:30 Svona þekkja flestir Lil C, við dómaraborðið í So You Think You Can Dance.
Dómarinn Lil C og keppandinn Legacy úr þáttunum So You Think You Can Dance? eru væntanlegir til landsins fyrir næstu helgi. Þeir koma sérstaklega á vegum DanceCenter Reykjavík, til að kenna á danshátíð skólans, Dansfestivali, sem fram fer um næstu helgi. Lil C er bæði þekktur fyrir að vera dómari í þáttunum, danshöfundur og fyrir að vera guðfaðir krumpsins. Hann ætlar að kenna hip hop og krump á Dansfestivalinu. Þar komast íslenskir dansarar í feitt því Lil C er meðal heitustu danshöfundanna vestanhafs. Hann hefur meðal annars samið fyrir Madonnu og Missy Elliott og dansað með fjölda stjarna á borð við Jennifer Lopez. Einnig leikið í bíómyndum á borð við Step Up-myndirnar og You Got Served.Sjá syrpu með Lil C hér.Legacy sendi sérstaka kveðju til Íslands fyrir nokkrum dögum. Hlekkurinn á hana er hér til hliðar.Legacy sló í gegn í So You Think You Can Dance? fyrir nokkrum árum og hefur gert það gott í kjölfarið. Hann mun kenna breik og hip hop. Legacy sendi sérstaka kveðju til Íslands í gegnum netið fyrir nokkrum dögum. Sjá kveðjuna frá Legacy hér. Þeir hlakka mikið að koma til landsins enda deila þeir sömu ástríðu og aðstandendur DanceCenter Reykjavík, það er að breiða út dansinn og ná því besta út úr nemendum. DanceCenter hefur áður náð að fá slíkt hæfileikafólk til landsins en markmið Dansfestivalanna er að styðja við grasrót dansins og geta boðið öllu áhugafólki upp á vandaða danskennslu. Nú þegar er byrjuð að myndast mikil spenna fyrir námskeiðum þessara meistara en aðstandendur dansfestivalsins leggja áherslu á að það sé fyrir alla og að dansgleðin sé í fyrirrúmi. Þannig er nemendum skipt upp í hópa eftir aldri og getu þannig að allir fái að njóta sín. Í lok Dansfestivalsins verða síðan opnar prufur fyrir glæsilega sýningu í anda þáttanna. Námskeiðin verða haldin á þremur stöðum, hjá Þrótti í Laugardal, í Vallarhúsinu í Fagralundi í Kópavogi og í Sjálandsskóla í Garðabæ. Skráning og nánari upplýsingar á dancecenter.is.
Mest lesið Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Lífið „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Lífið Ísrael sendir kvörtun til EBU Lífið „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið Halla á hátíðarsýningu Attenborough Lífið Fleiri fréttir „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Bók skilað eftir 56 ára útlán Hugmyndir fyrir mæðradaginn Bakaríið í beinni útsendingu Fréttatía vikunnar: Páfakjör, poppstjarna og nýr kanslari „Þetta eru þýðingarmestu skilaboð Davids Attenborough til þessa“ Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Drengurinn Fengurinn hlaut styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Leikstjórinn James Foley er látinn Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Sjá meira