Ólafur Elíasson: Veitir sér meðferð vegna óánægju Símon Birgisson skrifar 11. maí 2011 19:15 „
Ég er að reyna að veita sjálfum mér meðferð vegna þess hve ótrúlega óánægður ég er með að húsið sé óklárað," segir listamaðurinn Ólafur Elíasson í viðtali við Grapevine. Listamaðurinn gagnrýnir að Harpan hafi verið opnuð þrátt fyrir að framkvæmdum við húsið sé ekki lokið. Forsvarsmenn Hörpunnar segja starfsemina hafa haft forgang. Þó búið sé að opna hörpuna er enn margt óklárað. til dæmis listaverk Ólafs Elíassonar, þessi glerhjúpur, en um hálft ár er þangað til hann verður tilbúinn. Ólafur tjáir sig í fyrsta skipti um aðkomu sína að hörpunni í viðtali við blaðið Reykjavík Grapevine. Í viðtalinu segir Ólafur að fyrir hrun hafi húsið tekið mið af smekk fjárfestanna en á endanum hafi áherslan orðið frekar á notagildi hússins, byggingarefnum hafi verið breytt til að spara pening og Ólafur segir að á endanum hafi þjóðin fengið heiðarlegri byggingu fyrir vikið þar sem notagildi hafi vikið fyrir íburði. En Ólafur er líka gagnrýninn. Sannleikurinn sé sá að opnunartónleikar Hörpunnar fari í raun fram á vinnusvæði og fáir átti sig á að hans framlag, glerhjúpurinn, sé langt frá því að vera tilbúinn. Þá gagnrýnir hann stjórnendur Hörpunnar fyrir skort á upplýsingum. „Mér finnst það mjög sorglegt að ein spurning sem ég þarf iðulega að svara á ferðum mínum er : Hvað varð um tónlistarhúsið á Íslandi?" Forsvarsmenn Hörpunnar vildu ekki veita fréttastofu viðtal vegna málsins en sögðu sátt ríkja meðal stjórnenda Hörpunnar og Ólafs en listamaðurinn heimsfrægi kemur til Íslands á morgun til að vera viðstaddur opnunarhátíð hússins.
Mest lesið Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Innlent „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Innlent Fyrsta árinu af fjórum lokið Erlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Heitt í hamsi vegna Grænlands Innlent Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Erlent Fleiri fréttir „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Eldgos á næstu vikum enn líklegasta niðurstaðan Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Styrkleiki að formaður Framsóknar eigi sæti á þingi Þrjátíu á slysadeild vegna hálku og sjúkrabílar á leiðinni með fleiri Mannréttindaráðið ræðir Íran að frumkvæði Íslands Fimm starfslokasamningar kostað Hafró 35 milljónir Ögranir Trumps halda áfram og tugir leituðu á bráðamóttöku í hálkunni Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sandra tekin við af Guðbrandi Flughált í höfuðborginni og víðar um land Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Sjá meira