Strætóbílstjóri talaði í símann undir stýri Erla Hlynsdóttir skrifar 13. maí 2011 11:15 Farsímanotkun við akstur, án handfrjálss búnaðar, er ekki einungis lögbrot heldur einnig brot á starfsreglum vagnstjóra
Forsvarsmenn Strætó bs. hafa veitt vagnstjóra hjá fyrirtækinu tiltal vegna farsímanotkunar við akstur eftir að ljósmynd barst af bílstjóranum þar sem hann sást tala í símann á sama tíma og hann ók strætisvagni. Farþegi tók myndina og kom henni til fréttastofu sem síðan sendi hana áleiðis til Strætó bs. Upplýsingar frá ljósmyndara um tíma og staðsetningu vagns þegar myndin var tekin leiddi til þess að starfsfólk Strætó bs. gat haft uppi á vagnstjóranum. Gert er ráð fyrir að vagnstjórum verði sent tilkynning á allra næstu dögum þar sem ítrekaðar eru upplýsingar um starfsreglur, þar á meðal að ólöglegt sé að tala í síma við akstur. „Lögbrot og brot á starfsreglum vagnstjóra eru litin alvarlegum augum hjá Strætó bs. og farsímanotkun í akstri án handfrjáls búnaðar er ekki einungis lögbrot heldur er það einnig brot á starfsreglum vagnstjóra að tala í síma í akstri - með eða án handfrjáls búnaðar," segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs. Brot á lögum og starfsreglum fara eftir ákveðnum ferlum innan fyrirtækisins og kunna að leiða til áminningar og ef til vill síðar til brottreksturs ef svo ber undir. „Þetta er allt skráð," segir Reynir.Sama mynd, óklipptHann leggur áherslu á að fyrirtækið reyni eftir fremsta megni að vinna með sínu starfsfólki og aðstoða það við að bæta ráð sitt þegar þörf krefur, frekar en að segja upp góði fólki sem verður á að gera mistök í starfi. Ef um endurtekin brot sé að ræða er þó engin þolinmæði fyrir því. „Flestir taka ábendingum vel og brjóta ekki af sér aftur," segir Reynir. Þó hann geti ekki gefið upplýsingar um einstaka starfsmenn segir Reynir aðspurður að sá sem á myndinni sést tala í símann við akstur er ekki þekktur hjá fyrirtækinu nema af góðu einu. Reynir bindur því vonir við að eitt tiltal sé allt sem til þurfi. Reynir segir ekki algengt að ábendingar berist vegna þess að vagnstjórar tali í síma á meðan á akstri stendur, en það komi þó fyrir. Hann beinir því til viðskiptavina Strætó bs. að hafa sjálfir samband við fyrirtækið ef þeir vilja koma með athugasemdir, og segir þar fullum trúnaði heitið.
Mest lesið Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Ingibjörg býður sig fram í formanninn Innlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Erlent Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Innlent Fyrsta árinu af fjórum lokið Erlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Fleiri fréttir Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sandra tekin við af Guðbrandi Flughált í höfuðborginni og víðar um land Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Sjá meira