Lífið

Lofa stórtíðindum í Hamingjan sanna í kvöld

Síðasti þáttur Hamingjan sanna fer í loftið á Stöð 2 í kvöld og lofa aðstandendur þáttanna lofa stórtíðindum af hamingjuaukningu þátttakenda. Þeir voru neðarlega á hamingjuskalanum, eða í hópi 21% óhamingjusömustu manna í heiminum, í upphafi þáttanna.

Hægt er að lýsa Hamingjunni sönnu sem "jákvæðum raunveruleikaþætti" en þátturinn hefur einnig verið vísindalega rannsókn. Í hverjum þætti hefur Dr. Þorlákur Karlsson mælt hamingju þátttakenda og segir hann niðurstöðurnar merkilegar og að þær verði birtar í vísindatímaritum á næstunni. Niðurstöðurnar eru fengnar samkvæmt hamingjuprófi Dieners, sem aðstandendur þáttanna segja áreiðanlegasta hamingupróf í heimi.

Allt kemur þetta í ljós þegar síðasti þátturinn fer í loftið í kvöld klukkan 20.10 en þá verða rannsóknarniðurstöður kynntar. Umsjónarmaður þáttanna er Ásdís Olsen.

Hér fyrir ofan má sjá myndband úr síðasta þætti þar sem þátttakendur fengu að spreyta sig í stjórnun hjá Sveppa í Kringlunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.