Lífið

Troðfullt áTrúbadorkeppni FM957

MYNDIR/Arnór Halldórsson
Meðfylgjandi myndir voru teknar á síðara undanúrslitakvöldinu í Trúbadorkeppni FM957 og Corona á Players í Kópavogi í gærkvöldi. Átta atriði voru skráð til leiks og var ljóst að samkeppnin yrði virkilega hörð enda mikið í húfi. Kvöldið opnaði þó á því að útvarpsfólkið í Tívolí þættinum á FM957 fóru á svið til að reyna heilla dómnefndina en það gekk ekki sem skyldi og má með sanni segja að reynsluleysi hafi orðið þeim að falli.

Hin sjö atriðin stigu hinsvegar á svið hvert af öðru og voru allir keppendur einbeittu sér að því að heilla dómnefnd kvöldsins sem var skipuð þeim Hanna Bach trommuleikara Skímó, Haffa Haff tískumógul, Ísgerði Gunnarsdóttur leikkonu og Kristjáni Inga morgunhana í Svala & Félögum. Allir keppendur voru svo dyggilega studdir af stuðningsliðum sínum sem létu vel í sér heyra eins og sjá má á myndunum.

Þegar uppi var staðið valdi fagleg dómnefnd kvöldsins þrjú atriði áfram í úrslitin en áhorfendur í sal fengu svo að velja eitt atriði til viðbótar sem var í uppáhaldi hjá þeim. Eins og meðfylgjandi myndir sýna var stemningin gríðarleg á Players.

Atriðin sem fóru áfram voru:

Andrés Gunnarsson

Hjálmar Már Kristinsson

Einar Valur & Guðmann & Jón Valur (kalla sig 1+1)

Helgi Þorvalds & Benedikt Þorgeirsson (val áhorfenda)

Spennan verður því rafmögnuð fyrir úrslitakvöldið í Trúbadorkeppni FM957 og Corona sem verður haldið fimmtudaginn 14. apríl á Players. Þar munu öll átta atriðin keppa um þennan eftirsótta titil ásamt því að Bee On Ice, sigurvegarar keppninnar frá því í fyrra, ætla að taka lagið og afsala sér titlinum.

Miðar eingöngu fáanlegir á FM957 í næstu viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.