Byrjuðu að hanna saman í Víetnam 7. júní 2011 07:00 Hanna saman Gúrý Finnbogadóttir fatahönnuður ber samstarfinu við unnusta sinn, Jónas Breka Magnússon, vel söguna en þau hanna saman skartgripalínuna Zero6.
Gúrý Finnbogadóttir fatahönnuður og Jónas Breki Magnússon gullsmiður hafa vakið athygli með sameiginlegri skartgripalínu sinni Zero6. Hugmyndin að samstarfinu kom eftir að parið flutti til Víetnam en þar fengu þau að kynnast hinni hliðinni á hönnunarferlinu. „Okkur hefur alltaf langað til að gera eitthvað saman og samstarfið kom eiginlega af sjálfu sér þegar við fluttum út til Víetnam og fengum tíma," segir Gurý Finnbogadóttir fatahönnuður, sem hannar skartgripi ásamt kærasta sínum, Jónasi Breka Magnússyni gullsmiði. Skartgripirnir hafa fengið ótrúlega góðar viðtökur hjá konum jafnt sem körlum og stefna hjónaleysin á að fara með skartið í verslanir hérlendis, sem og að koma því inn á norrænan markað í bráð. Línan þeirra nefnist Zero6, en nafnið er táknrænt í þeirra huga. „Dóttir okkar, Ísabella, fæddist árið 2006 og standa því tölurnar núll og sex okkur nærri. Það var vel við hæfi að gefa línunni persónulegt nafn þegar skartgripirnir eru fjölskylduverkefni," segir Gúrý og lýsir skartgripunum sem rokkuðum og grófum. Gúrý og Jónas Breki eru alla jafna búsett í Kaupmannahöfn en hafa undanfarna mánuði verið í Víetnam. Jónas Breki er starfsmannastjóri hjá dönsku gullsmíðafyrirtæki og hefur yfirumsjón með 180 starfsmönnum í Víetnam. Hann er staddur þar núna og verður út sumarið en Gúry er nýflutt aftur til Kaupmannahafnar, þar sem hún var að eignast annað barn þeirra. „Það var mikið ævintýri að vera í Víetnam, þar sem við fengum að kynnast hinni hliðinni á hönnunarferlinu, framleiðsluhlutanum. Þar kviknaði hugmyndin að Zero6, enda er frábært að geta komið sér upp tengiliðum á borð við saumastofur og verkstæði á meðan maður er á staðnum," segir Gúrý. Hún bætir við að það hafi verið gott að geta fylgt framleiðslunni eftir, en hún notaði líka tímann til að undirbúa hönnun á sinni eigin fatalínu, Gury. Þau stefna á að opna sameiginlega vefverslun á næstunni þar sem hægt verður að kaupa fatalínu hennar og skartgripalínu Jónasar Breka, Breki Design, ásamt sameiginlegu línunni, Zero6. Gúrý lætur vel af samstarfinu milli hjónaleysanna. „Við höfum alltaf verið góð í að kasta á milli okkar hugmyndum, þar sem við erum bæði í þessum skapandi bransa. Maður þarf bara að vera góður í að veita gagnrýni og taka henni. Það er ákveðin kúnst." Þeim sem vilja fylgjast með skartgripahönnuninni er bent á Facebook-síðu Breki Design, en þar er einnig hægt að sérpanta skartgripi. alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið Fleiri fréttir Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Sjá meira