Lífið

Músmos í fjórða sinn

Hljómsveitin Rökkurró spilar á Músmos-hátíðinni.
Hljómsveitin Rökkurró spilar á Músmos-hátíðinni.
Tónlistarhátíðin Músmos verður haldin í fjórða sinn á Álafossi í Mosfellsbæ laugardaginn 11. júní. Þar koma margir flytjendur fram, þar á meðal Rökkurró, Legend, Elín Ey og rapparinn Gummster.

„Þetta hefur gengið mjög vel hjá okkur. Við höfum fengið fullt af flottum og skemmtilegum böndum,“ segir skipuleggjandinn Jóhannes Eðvarðsson og nefnir rokksveitina Endless Dark til sögunnar. Tónlistarhátíðin stendur yfir frá klukkan 15 til 19.30 og er enginn aðgangseyrir. Hjólabretta- og BMX-kappar á vegum LEX-Games verða á svæðinu og munu leika listir sínar meðan á tónaveislunni stendur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.