Forstjóri CCP biður notendur Eve afsökunar 7. október 2011 14:00 Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, hefur beðist afsökunar á þeirri gjá sem hefur myndast milli notenda EVE Online og fyrirtækisins.
Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, hefur beðið notendur tölvuleiksins EVE Online opinberlega afsökunar á vefsvæði sínu. Bréfið er óvenju einlægt miðað við bréf frá forstjóra í tölvugeira og hefur vakið mikla athygli hjá vefsíðum sem fjalla um tölvuleiki. CCP lenti í miklum vandræðum fyrr á þessu ári þegar innanhússbréf fyrirtækisins lak til notenda EVE Online en þar voru meðal annars reifaðar hugmyndir um að gera fólki kleift að kaupa sér aukin völd inni í leiknum með venjulegum peningum. Trúir og tryggir notendur urðu æfir og hótuðu að segja upp áskrift sinni enda tekur það marga mánuði að byggja upp veldi í leiknum. En nú hefur Hilmar sem sagt beðist afsökunar á þætti sínum í málinu og viðbrögðum. „Sú gjá sem notendur hafa upplifað að hafi myndast milli þeirra og CCP er mér að kenna og mér þykir það leitt,“ skrifar Hilmar en hann byrjar bréfið á því að segja að síðastliðnir mánuðir hafi verið honum lærdómsríkir. Hann hafi leitað mikið inn á við og komist að því að það sé honum nauðsynlegt að hreinsa andrúmsloftið. Hilmar biðlar jafnframt til notenda að þeir sýni honum þolinmæði. „Ég var óþolinmóður þegar ég átti að vera varkár […] og hrokafullur þegar ég átti að vera auðmjúkur.“ Forstjórinn segist hafa verið þrjóskur og barið hausnum við steininn þegar honum var bent á mistök. „Þið [notendurnir] hafið talað hátt og skýrt bæði í orði og á borði. Og það eru vissulega mikilvæg augnablik þar sem ég vildi að ég hefði hlustað og tekið aðrar ákvarðanir. Ég hafði rangt fyrir mér og ég viðurkenni það.“ - fgg
Mest lesið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Lífið Fleiri fréttir Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Sjá meira