Lífið

Vildi ekki festa ráð sitt

Blake Lively vildi ekki stofna fjölskyldu með Leonardo DiCaprio. nordicphotos/getty
Blake Lively vildi ekki stofna fjölskyldu með Leonardo DiCaprio. nordicphotos/getty
Leikararnir Blake Lively og Leonardo DiCaprio hafa slitið sambandi sínu. Þetta staðfestu talsmenn þeirra beggja. Samkvæmt heimildarmanni mun Lively ekki hafa verið tilbúin til að festa ráð sitt með hjartaknúsaranum. „Þetta var of mikið, of hratt. Leonardo vill stofna til fjölskyldu bráðlega en Blake var ekki tilbúin til að festa ráð sitt strax, enda er hún enn þá ung,“ sagði heimildarmaðurinn. Parið sást fyrst saman á Cannes-kvikmyndahátíðinni í vor og entist samband þeirra í fimm mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.