Spiluðu á sama sviði og Lady Gaga 13. ágúst 2011 16:00 Stúlkurnar í The Charlies voru ánægðar með tónleikana á skemmtistaðnum Avalon í Hollywood sem laðar að sér fræga gesti. „
Viðbrögðin voru hreint út sagt tryllt og orkan í húsinu var frábær,“ segir Steinunn Camilla, ein af stúlkunum í The Charlies um tónleika þeirra á skemmtistaðnum Avalon í Hollywood á fimmtudagskvöld. Sveitin, sem einnig er skipuð þeim Klöru og Ölmu, kom fram fyrir 5.000 áhorfendum sem klöppuðu og dönsuðu við tóna sveitarinnar. „Þetta var frábært kvöld í alla staði og fólk hópaðist að okkur til að taka myndir og fá myndir af okkur með sér eftir á,“ segir Steinunn í skýjunum með frábært kvöld. Tónleikarnir voru haldnir á svokölluðu TigerHeat-kvöldi sem, að sögn Steinunnar, eru mjög fræg. Poppprinsessan Lady Gaga kom fram á sama sviði og The Charlies þegar hún var að stíga upp á stjörnuhimininn árið 2008. Staðurinn Avalon hefur svo laðað að sér fræga gesti eins og Britney Spears, Sir Elton John og Janet Jacksson, sem öll vöktu athygli fjölmiðla fyrir komu sína þangað. Stúlkurnar komu fram með fimm dansara sér við hlið til að gera sýninguna sem flottasta. Einnig héldu þær uppteknum hætti og hönnuðu og saumuðu búningana sjálfar. „Við gerðum atriðið allt sjálfar, dansana, búningana og meira að segja tókum þátt í að segja hvernig ljósin ættu að vera stillt á sviðinu,“ segir Steinunn og bætir við að hún hafi gert átta mínútna myndbandsverk sem rúllaði undir tónlistaratriðunum. „Það voru bara svona myndbandsklippur sem ég setti saman og tengdi við lögin. Ég stefni á að stytta það aðeins og setja svo á You Tube svo allir geti séð,“ segir Steinunn. Brjálað er að gera hjá stelpunum sem komast ekki heim fyrr en um jólin í fyrsta lagi. „Við erum á fullu alla daga og alltaf uppi í stúdíói.“ - áp
Mest lesið Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Bíó og sjónvarp „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Lífið Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Lífið „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Tónlist „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Leikarinn Sam Neill er látinn Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun Fleiri fréttir Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Sjá meira