Cortes-feðgar taka upp plötu saman í fyrsta skipti 13. ágúst 2011 09:00 Garðar Thór Cortes og Garðar Cortes vinna nú að dúettaplötu sem kemur út í haust. fréttablaðið/gva „
Þetta leggst mjög vel í mig. Ég hef lengi viljað búa til plötu með pabba, þannig að við hlökkum báðir til,“ segir söngvarinn Garðar Thór Cortes. Feðgarnir Garðar Thór Cortes og Garðar Cortes vinna nú saman að plötu sem kemur út í haust. Karl Olgeirsson sér um tónlistarstjórnina og nú er verið að leggja lokahönd á útsetningarnar í Svíþjóð. Upptökur á sinfóníuhljómsveit og kórum fara fram í Hörpu í ágúst. Af hverju núna? „Það er langt síðan ég gaf út plötu síðast. Svo ég held að það sé kominn tími til að ég syngi inn á aðra plötu,“ segir Garðar og bætir við að það hafi blundað í feðgunum í einhvern tíma að taka upp plötu saman. Platan mun innihalda fjórtán lög sem flestir ættu að kannast við, að sögn Garðars, en þeirra á meðal eru Draumalandið, Í fjarlægð, Sjá dagar koma og Maístjarnan. „Þetta eru söngperlur sem allir þekkja, en hafa aldrei myndað heila plötu í útsetningum fyrir dúett. Svo að það er eitthvað nýtt,“ segir Garðar. „Það er alltaf gaman og spennandi að takast á við eitthvað sem er aðeins öðruvísi.“ Nú eru þið báðir hoknir af reynslu, en heldurðu að hann ætli að segja syninum til í hljóðverinu? „Eflaust. Þannig á það að vera. Við höfum unnið oft og vel saman, þannig að við þekkjum inn á hvor annan og erum ófeimnir við að koma með hugmyndir og uppástungur. Hann hefur oft stjórnað mér á sviði, þannig að þetta verður bara gaman.“ En nú er langt síðan þú sendir síðast frá þér plötu. Hvar hefurðu haldið þig? „Hér heima og erlendis. Ég er alltaf að syngja. Alltaf að.“ atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið 50+: Þegar börnin búa enn heima hátt í þrítugt Áskorun Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Lífið Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Lífið 90% þeirra sem upplifa hárlos meðhöndla það ekki - það er þó hægt Lífið samstarf Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Lífið Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat Lífið Öðruvísi líf: „Veistu Hrund, þú ert eiginlega eins og Forrest Gump“ Áskorun Trúlofuðu sig á sama stað og þau byrjuðu saman Tónlist Barnahátíðin Kátt snýr aftur Lífið Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu Lífið Fleiri fréttir Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Færa Vestur-Íslendingum rausnarlega afmælisgjöf Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Aðstandendur Secret Solstice standa að nýrri hátíð sem hefst með almyrkvanum Einlæg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ „Þetta var eins og draumur sem ætlaði aldrei að taka enda“ „Þegar ég hitti þá fyrst pissaði ég á mig“ Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar „Fullkomin viðbót“ hjá Selmu og Sölva Uppáhalds sumardrykkur Gerðar: „Ég fæ ekki nóg“ Sjá meira