Halda afmæli Nonna Sig 17. júní 2011 11:00 Andrea Björk Andrésdóttir og Ólöf Vignisdóttir eru í listahópnum UngSögu, en dagskrá hennar má finna á www.facebook.com/ungsaga.
Við elduðum saltfisk," segir Andrea Björk Andrésdóttir, annar meðlima UngSögu, eins af listahópum Hins hússins. UngSaga býður upp á sögugöngur um Reykjavík í sumar. „Saltfiskur er þjóðlegur. Við vildum elda eitthvað í stíl við okkur. Saltfiskur spilar veigamikinn þátt í sögu Reykjavíkur." Ólöf Vignisdóttir er hinn meðlimur UngSögu, en þær vinkonur bjóða til afmælis Nonna Sig við Alþingishúsið klukkan þrjú í dag. „Þetta verður eins og barnaafmæli með helíumblöðrum, kökum og kruðeríi. Hann Jón er tvö hundruð ára í dag," segir Andrea og bætir við að afmælisveislan verði blanda af gjörningi og fræðslu. „Við bjóðum fólki að spjalla við okkur um karlinn og hans helstu afrek." Andrea segir að þær Ólöf hafi talað við Guðmund Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði, til að fræðast um Jón Sigurðsson. „Við ætlum til dæmis að reyna að svara spurningum um hvort og hvernig sjálfstæðishetja Jón Sigurðsson var meðan við borðum kökur," segir Andrea og er í framhaldinu innt eftir því hvernig hetja Jón hafi verið. „Hann er mjög mikilvægur en óvenjuleg sjálfstæðishetja. Hann barðist ekki og var ekki heldur píslarvottur. Flestar sjálfstæðishetjur eru annað hvort píslarvottar eða stríðshetjur." martaf@frettabladid.is
Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Fleiri fréttir Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sjá meira