Ástríður snýr aftur 18. júní 2011 08:00 Ilmur Kristjánsdóttir segir að sjónvarpsdagskráin hafi verið með karlaslagsíðu að undanförnu og það sé því sérstakt gleðiefni að gera eigi þáttaröð númer tvö af Ástríði.Fréttablaðið/Valli
Framhald verður á ævintýrum fjármálastarfsmannsins Ástríðar. Framleiðslufyrirtækið Saga Film og Stöð 2 hafa náð samningum um að gera þáttaröð númer tvö en fyrsta serían sló eftirminnilega í gegn og var tilnefnd til fjölda Eddu-verðlauna. Ilmur Kristjánsdóttir leikkona er afar ánægð með að önnur þáttaröð um Ástríði verði að veruleika. „Ég er mjög ánægð, það er kominn tími á kvenkynsefni í sjónvarpi, það hefur verið svo svakaleg karlaslagsíða undanfarið.“ Ilmur var þó bara nýbúin að heyra af þessari ákvörðun og segir handritsvinnu nú eiga að fara á fullt. „Við erum bara aðeins búin að hittast og ræða málin, ég get því ekki mikið sagt þér. Ég geri hins vegar fastlega ráð fyrir því að Silja [Hauksdóttir] eigi eftir að leikstýra þessu.“ Ilmur reiknar jafnframt með því að Ástríður verði ekki lengur í starfi hjá fjármálafyrirtækinu sínu. „Nei, það er allavega ein af hugmyndunum, að hún verði atvinnulaus í byrjun þáttanna.“ Ilmur var stödd í Halifax þegar Fréttablaðið náði tali af henni og gat því ekki verið viðstödd Grímu-verðlaunin sem voru afhent við hátíðlega athöfn á fimmtudagskvöld. Hún var tilnefnd sem leikkona ársins fyrir Fólkið í kjallaranum en leikstjóri sýningarinnar, Kristín Eysteinsdóttir, fékk hins vegar ekki tækifæri til að lesa ræðuna sem Ilmur sendi henni því Unnur Ösp Stefánsdóttir bar sigur úr býtum fyrir Elsku barn. Ilmur er stödd í kanadísku borginni við upptökur á ferðaþætti sem sýndur verður á Stöð 2, en eins og frægt er orðið þeyttust Ívar Guðmundsson og Arnar Grant um alla Evrópu í sambærilegum þætti. Ilmur staðfestir að hún sé kvenkyns-útgáfan af þeim tveim. Hún var í það minnsta að fara á brimbretti með kanadískum heimsmeistara í íþróttinni en hún hefur heimsótt Glasgow, París, Boston, Helsinki og Seattle, þar sem hún fór meðal annars í áheyrnarprufu hjá grunge-sveit. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Fleiri fréttir Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sjá meira