Rögnu Lóu boðið að taka þátt í breskum raunveruleikaþætti 4. maí 2010 09:00 Rögnu Lóu Stefánsdóttur hefur verið boðið að taka þátt í breskum raunveruleikaþætti. Hún mun auk þess kryfja leiki HM í knattspyrnu til mergjar á Stöð 2 Sport 2. fréttablaðið/anton
Rögnu Lóu Stefánsdóttur hefur verið boðið að taka þátt í breskum raunveruleikaþætti þar sem fylgst er með lífi venjulegs fjölskyldufólks. Í samtali við Fréttablaðið segist hún ekki hafa hugmynd um hvað hún eigi að gera; hvort hún eigi að taka þessu boði og hleypa þar með sjónvarpsmönnum inn í líf sitt og fjölskyldu sinnar. „Ég er eiginlega í hálfgerðu sjokki," segir Ragna Lóa sem um árabil var ein fremsta knattspyrnukona þjóðarinnar en býr nú í Portsmouth ásamt eiginmanni sínum, Hermanni Hreiðarssyni, leikmanni Portsmouth og fyrirliða íslenska landsliðsins. Ragna vill sem minnst um raunveruleikaþættina segja að svo komnu máli enda sé ekkert frágengið með þátttöku hennar. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst er um að ræða gríðarlega stóra framleiðslu og miðað við það álit sem Bretar hafa á Íslandi í kjölfar Iceasave-deilunnar og öskunnar frá Eyjafjallajökli væri þetta kærkomið tækifæri fyrir Rögnu að lagfæra aðeins ímynd þjóðarinnar. „Ég sagði reyndar við Hermann á sínum tíma að þegar ferillinn hans væri búinn myndi ég taka við, hver veit nema það sé að rætast," segir Ragna Lóa og hlær. Hún hefur reyndar þurft að þola hálf farlama Hermann sem sleit hásinina í leik gegn Tottenham fyrir nokkru. Tímabil Portsmouth í heild hefur ekki verið neinn dans á rósum því félagið féll úr ensku úrvalsdeildinni, fjárhagsvandræði þess hafa verið í stöðugu kastljósi fjölmiðlanna og svona mætti lengi telja. „Við erum samt eins og ein stór fjölskylda, þetta hefur þjappað öllum saman. Þetta er eins og að vera á stóru ættarmóti, það leggjast allir á eitt," segir Ragna sem mun að sjálfsögðu fylgja liðinu á Wembley þegar það etur kappi gegn milljarðaliði Chelsea í úrslitum enska bikarsins. Ragna mun hins vegar þreyta frumraun sína í sjónvarpi þegar hún stýrir HM 4-4-2 á Stöð 2 Sport 2, óháð því hvort hún tekur þátt í bresku raunveruleikasjónvarpsseríunni. Í þáttunum verða leikir heimsmeistaramótsins í knattspyrnu, sem fram fer í Suður-Afríku, krufnir til mergjar en með henni í þættinum verður Logi Bergmann Eiðsson. „Þetta eru auðvitað forréttindi, að fá vinnu við áhugamálið sitt. Fótbolti er lífið mitt og þetta er bara happdrættisvinningur fyrir manneskju eins og mig," segir Ragna og viðurkennir að hjartað slái með enskum á HM í sumar. „Margir af leikmönnum liðsins eru persónulegir vinir manns og að horfa á enska landsliðið er bara eins og að horfa á félagsliðið sitt. Við erum bæði alveg rosalega spennt fyrir HM í sumar." freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd Lífið Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Sambandi Cox og McDaid lokið Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Fleiri fréttir Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Sjá meira