Fótbolti

Lampard vill ekki missa Capello

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Frank Lampard hefur engan áhuga á því að missa Fabio Capello sem landsliðsþjálfara hjá Englandi þó svo England detti út úr riðlakeppni HM. England þarf að leggja Slóveníu til þess að komast áfram í keppninni.

"Ég hef notið þess að vinna með honum og virði hann mikils. Ég vil að hann verði áfram með liðið. Annars kemur það mér ekki við heldur honum og enska knattspyrnusambandinu," sagði Lampard.

"Ég hef verið svo heppinn að hafa spilað undir stjórn frábærra þjálfara í gegnum tíðina og Capello er þar á meðal."

Lampard segir að það sé komið nóg af tali hjá leikmönnum enska landsliðsins. Nú sé kominn tími á að láta verkin tala á vellinum.

"Það sem skiptir máli er hvernig við spilum, hvernig við æfum og hvernig við náum réttum úrslitum. Við verðum að ná góðum úrslitum á miðvikudag. Ég vil spila vel sem og að liðið komist á rétta braut.  Við þurfum að ná upp andanum í liðinu og spila af sama ákafa og við spilum á heimavelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×