Þrjóska heldur Baggalúti á lífi 2. september 2010 09:15 Grallararnir í Baggalúti eru komnir aftur á stjá eftir sumarfrí. Þeir eiga tíu ára afmæli í ár. Mynd/Arnþór Birkisson „
Sumarfríið var mjög gott, bæði fyrir okkur og sérstaklega fyrir lesendur. Núna erum við búnir að hlaða öll hugsanleg batterí," segir Bragi Valdimar Skúlason, Baggalútur. Vefsíðan vinsæla Baggalutur.is er komin aftur af stað eftir sumarfrí, mörgum netverjum til mikillar ánægju. Útlit síðunnar hefur verið endurbætt auk þess sem fleiri myndbönd verða í boði en áður. „Við ákváðum á stjórnarfundi að veita auknum fjármunum og tíma í sjónvarpsframleiðslu. Íhaldssami lesendaarmurinn verður örugglega arfareiður," segir Bragi, sem er spenntur fyrir vetrinum: „Við sáum fram á sóknarfæri þegar Spaugstofan er horfin en það er horfið aftur. Við vorum að vonast til að þetta yrði okkar ár en, nei, það er ekki því að heilsa. Við verðum bara áfram í rólegheitunum á internetinu. Það hentar okkur ágætlega. Það er líka svo útbreitt," segir hann grafalvarlegur. Tíu ár eru liðin síðan Baggalútur steig fram á sjónarviðið. Bragi segir þá félaga aldrei hafa búist við að endast eins lengi og raun ber vitni. „Það var meira spurning hvort við ættum að nenna þessu út mánuðinn á þeim tíma. Það er þrjóskan sem telur í þessum bransa og svo eru líka gríðarlegar tekjur af vefsíðurekstri." Bragi útilokar ekki að afmælisrit verði gefið út í tilefni áfangans. „Það hefur staðið til í tíu ár en það er aldrei að vita nema við bíðum í níutíu ár í viðbót og gefum þá út fyrstu hundrað árin." -fb
Mest lesið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar Lífið Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Lífið Britney farin í meðferð Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Fleiri fréttir Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Sjá meira