Of feitur fyrir flugvélina 16. febrúar 2010 02:00 of feitur Leikstjórinn Kevin Smith þótti of feitur til að geta setið í einu flugsæti á leið sinni heim.nordicphotos/getty
Leikstjóranum Kevin Smith var meinað að fljúga frá Oakland til Burbank í Kaliforínu vegna þess að hann þótti of feitur fyrir flugvélina. Smith brást hinn versti við. Kevin Smith, sem hefur leikstýrt myndum á borð við Clerks og Chasing Amy, var á heimleið eftir að hafa haldið ræðu í San Francisco. Flugmanni vélarinnar þótti leikstjórinn of feitur til að sitja í aðeins einu flugsæti og vísaði honum á brott. Þetta ætti reyndar ekki að koma á óvart því Smith hefur hreinlega blásið út undanfarin ár á sama tíma og reglur flugfélaga gagnvart feitlögnu fólki hafa verið hertar til muna. „Ég er mjög feitur en ég er ekki alveg svona feitur. Ef þið lítið út eins og ég getið þið átt von á því að vera vísað úr flugvél Southwest Air," skrifaði Smith bálreiður á Twitter-síðu sína og lét fylgja með mynd af sér úr flugvélinni með uppblásnar kinnar. Talsmenn flugvélagsins segja það stefnu sína að farþegarnir þurfi að passa vel og örugglega í sætið sitt. Ef ekki þurfa þeir að gera aðrar ráðstafanir. Eftir að Smith og fjöldi aðdáenda hans mótmæltu uppákomunni á Netinu ákvað flugfélagið að biðja leikstjórann afsökunar á sinni eigin Twitter-síðu og síðar meir á heimasíðu sinni þar sem afsökunarbeiðnin var birt undir fyrirsögninni: „Ekki svo hljóðlátur Bob". Þar var verið að vísa í persónu Smiths, Silent Bob, sem hann hefur leikið í þónokkrum myndum. Þar kom fram að flugfélagið hefði útvegað Smith pláss í annarri flugvél sem flaug síðar um daginn. Bæði Smith og flugfélagið voru sammála um að hann hefði upphaflega keypt sér tvö flugsæti til að komast alveg örugglega fyrir en til að komast fyrr heim til sín fór hann með vél þar sem aðeins eitt sæti var í boði. Þrátt fyrir það hélt leikstjórinn því fram að hann hefði getað sett báða sætisarmana niður og spennt beltið. Næsta kvikmynd Smiths nefnist Cop Out þar sem Bruce Willis fer með aðalhlutverkið. Um gamanmynd er að ræða og verður hún frumsýnd 26. febrúar í Bandaríkjunum.
Mest lesið Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Lífið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Lífið Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Sjá meira