The Game hættir við vegna flughræðslu 18. desember 2010 16:15 The Game neitaði að fljúga til Íslands eftir að flugvél sem hann var í lenti harkalega fyrir skömmu. „
The Game neitaði að taka á loft í þessum veðuraðstæðum,“ segir Arnviður Snorrason, best þekktur sem Addi Exos. Til stóð að Addi myndi halda tónleika með bandaríska rapparanum The Game á Broadway í kvöld. Tónleikunum hefur verið aflýst, þar sem rapparinn var gripinn flughræðslu í síðustu viku. „Í síðustu viku lenti flugvélin hans svo illa að hann tók þá ákvörðun að hætta við öll flug – meðal annars til Íslands. Hann keyrði til allra tónleikastaða á meginlandi Evrópu,“ segir Addi. „Síðasta miðvikudag komst hann til dæmis ekki á tónleikana sína í Póllandi vegna ófærðar.“ En er hann ekki að brjóta samning við þig? „Reyndar.“ Það hlýtur að hljótast af þessu fjárhagslegt tjón – er einhver möguleiki á að fá bætur? „Ég nenni því ekki. Þeir koma bara seinna.“ Þú hefur ákveðið að halda góðu sambandi við hans menn í staðinn fyrir að fara dómstólaleiðina? „Já. Ég nenni ekki einhverju svoleiðis væli, hef ekki tíma í það.“ Tapaðirðu miklu? „Aðallega tímanum. Annars var þetta bara skemmtilegt. Það þarf meira til að koma manni úr jafnvægi en þetta.“ Þú ert sem sagt bara brattur? „Já, já, jólin á leiðinni og svona.“ Þeir sem voru búnir að kaupa miða geta fengið endurgreitt í Mohawks í Kringlunni á mánudaginn. Addi lofar þeim að margt sé fram undan og að stór nöfn í hiphop-heiminum séu á leiðinni til landsins. „Stærri nöfn heldur en The Game,“ fullyrðir Addi. „Mér þykir leiðinlegast að valda aðdáendum hans vonbrigðum. Þetta er því miður ekki í okkar höndum.“ - afb
Mest lesið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Hera Björk mun kynna stigin Lífið Fleiri fréttir Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Sjá meira