Lífið

Níutíu tónleikar á einu ári

Hljómsveitin heldur síðustu tónleika sína á árinu í Tjarnarbíói á sunnudag. fréttablaðið/stefán
Hljómsveitin heldur síðustu tónleika sína á árinu í Tjarnarbíói á sunnudag. fréttablaðið/stefán

Sóley Stefánsdóttir og félagar í hljómsveitinni Seabear lentu í ýmsum ævintýrum á tónleikaferðalögum sínum á árinu. Þau hittu meðal annars hjón sem kváðust hafa gift sig við tóna sveitarinnar.

Hljómsveitin Seabear heldur sína nítugustu og síðustu tónleika á árinu í Tjarnarbíói á sunnudagskvöld. Sveitin hefur spilað vítt og breitt um Evrópu og í Bandaríkjunum síðan platan We Built A Fire kom út í mars. Hún fékk meðal annars fjórar stjörnur í tímaritinu Q.

„Þetta er svolítið brjálæði þegar maður hugsar út í það,“ segir Sóley Stefánsdóttur um tónleikaferðina sem lauk fyrir nokkrum vikum. „Þetta tekur rosalega á. Maður fer út í tvær vikur til að keyra á fullu og spila. Svo kemur maður heim og þarf allt í einu að fara að lifa eðlilegu lífi. En ég myndi ekki vilja skipta á þessu og einhverju öðru.“

Seabear spilaði síðast í Póllandi og voru það fyrstu tónleikar sveitarinnar þar. „Það var svolítið öðruvísi og annað en ég bjóst við. Pólverjarnir tóku okkur eins og rokkstjörnum. Þeir elska íslenska tónlist.“

Sóley minnist einnig hjóna sem þau hittu á tónleikum í Salt Lake City í Bandaríkjunum. Þau sögðust hafa gift sig við lag Seabear, I Sing I Swim, enda hljómaði lagið á fyrsta stefnumóti þeirra. „Þau stóðu fremst og grétu,“ segir Sóley sem var mjög undrandi yfir þessari uppákomu.

Fram undan hjá Seabear eru lagasmíðar vegna nýrrar plötu sem þau vonast til að gefa út 2012. Á næsta ári ætlar forsprakkinn Sindri einnig að gefa út nýja sólóplötu í mars og Sóley er sömuleiðis að undirbúa sólóplötu.

Tónleikarnir á sunnudag hefjast klukkan 21 og kostar 2.000 kr. inn. Forsala miða fer fram í Tjarnarbíói frá 13 til 15 og á Midi.is.

freyr@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.