Lífið

GusGus í Fellunum

Gusgus Stífpressaðir í Fellunum.
Gusgus Stífpressaðir í Fellunum.
Nýjasta myndband GusGus, við lagið „Thin Ice“, er komið á Netið. Þetta er annað smáskífulag sjöundu breiðskífu sveitarinnar, 24/7, sem kom út í fyrra.

Myndbandinu leikstýrðu Heimir Sverrisson og Jón Atli Helgason. Þeir leikstýrðu einnig myndbandi GusGus við lagið „Add this Song“ sem sýndi strákana á spítala. Í nýja myndbandinu má sjá strákana í jakkafötunum sínum í Fellahverfinu í Breiðholti. Allt er frekar grátt og guggið þangað til þremenningarnir mæta á svæðið. Meðal leikenda eru nemendur úr Fellaskóla og Breiðholtsbúar sem tóku fagnandi þátt eftir að hafa móttekið skriflega beiðni leikstjóra.

Gus Gus fór í velheppnaða tónleikaferð um Evrópu á haustmánuðum í fyrra en hefur verið undir feldi síðustu mánuði. Þremenningarnir ætla að láta ljós sitt skína á heimavelli sínum, Nasa við Austurvöll, 19. mars næstkomandi og mun koma fram ásamt ungliðunum í Retro Stefson og sænsku chillwave-sveitinni Air France.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.