Sveinn M. segir Pete Doherty fluggáfað ljúfmenni 7. maí 2010 00:01 Sveinn gerir það gott í London. Hann er yfirupptökustjóri Great Eastern-hljóðversins og hefur tekið upp efni með hljómsveitum á borð við The Horrors, White Lies og Babyshambles. „
Pete er búinn að vera að taka mikið upp hjá mér. Ég er einmitt að fara að taka hann upp eftir klukkutíma. Hann er eldhress," segir Hafnfirðingurinn Sveinn M. Jónsson. Sveinn er yfirupptökustjóri í Great Eastern-hljóðverinu í London og hefur tekið upp efni með hljómsveitum á borð við The Horrors, White Lies og Babyshambles. Sú síðastnefnda er leidd af vandræðagemlingnum Pete Doherty, sem er um þessar mundir að taka upp nýtt efni undir stjórn Sveins og félaga hans, Teits Árnasonar. „Þetta er allt öðruvísi tónlist en hann hefur verið að gera. Þetta er svona amerísk fólk-tónlist," segir Sveinn um lögin sem Pete samdi ásamt Alan Wass, félaga sínum til margra ára. „Þeir hafa verið að flytja þetta lag sem ég er að taka upp og pródúsera fyrir þá. Ég spila líka á gítar í laginu. Pete er ánægður með okkur og það lítur út fyrir að samstarfið haldi áfram og hann verði með annan fótinn hérna." Pete Doherty er gríðarlega umdeildur maður, en Sveinn segir fjölmiðla hafa gefið mjög ranga mynd af honum. „Pete er í raun algjört ljúfmenni og fluggáfaður," segir hann. „Hann er alltaf með stóra og þykka bók með sér sem hann skrifar í pælingar, hugmyndir og ljóð. Það er líka mjög gaman að tala við hann. Hann er mikill heimspekingur í sér og virðist vera með ákveðinn skilning á lífinu og öllu í kringum sig." En er hann með krakkpípuna í hljóðverinu? „(Hlær) Í viðskiptum og rekstri ríkir ákveðið traust milli viðskiptavinar og rekstraraðila. Við leyfum honum að gera sína músik og við auglýsum ekki það sem hann gerir hjá okkur," segir Sveinn. „Hann er tónlistarmaður inn að beini og vill einbeita sér að því. Þegar hann kemur til okkar er hann ekki í neinu rugli. Þetta er vinnan hans." Sveinn lærði upptökustjórn í Glasgow, þar sem hann bjó í tvö ár. Hann flutti svo til London og tók við stjórn hljóðversins úr höndum upptökustjóra sem hafði misst áhugann á starfi sínu. Hann hefur haft nóg fyrir stafni frá því að hann tók við og tekið upp með stórum nöfnum. „Þetta er búið að vera hálfgert ævintýri síðustu sex ár og ég hugsa að maður verði hérna eitthvað áfram," segir Sveinn. atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi Lífið samstarf „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Lífið samstarf Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Fleiri fréttir Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Sjá meira