Vilja tískuverslun í Skífuna við Laugaveg 7. maí 2010 11:00 Jakob Frímann miðborgarstjóri var viðstaddur opnun Skífunnar á sínum tíma og segir þetta hafa verið glæsilegustu tónlistarverslun landsins.
Fjölmargir aðilar hafa lýst yfir áhuga á verslunarhúsnæði Skífunnar á Laugaveginum. Plötubúðin hættir starfsemi þar í sumar og verður eingöngu starfrækt í Kringlunni. „Ég hef engar áhyggjur af því að þetta húsnæði standi laust lengi," segir Jakob Frímann Magnússon miðborgarstjóri. „Það hafa mjög margir sýnt áhuga á að fara þarna inn með hönnun, tískuvöru og þess konar sérvöru. Það er slegist um þessi góðu verslunarpláss á Laugaveginum." Að sögn Jakobs Frímanns hefur brotthvarf Skífunnar úr húsnæðinu legið lengi í loftinu. „Þetta er auðvitað eitthvað sem er búið að stefna í um nokkurt skeið hér sem annars staðar. Stórar hljómplötuverslanir hafa verið að skella í lás hver af annarri," segir hann og á þar við Virgin Megastore sem lokaði í New York í desember auk þess sem stórum plötuverslunum á Oxford Street í London hefur fækkað að undanförnu. Jakob kennir ólöglegu niðurhali á tónlist um lokun búðarinnar og vill ekki meina að Skífan hafi verið illa rekin. „Þetta er besti staður til að hafa verslun í miðborginni en miðað við hvað stór hluti tónlistarneytenda er kominn í netheiminn þá var þetta ekki raunhæft lengur," segir hann og bætir þessu við um niðurhalið: „Ég hef áhyggjur af því hversu illa og seint gengur að fá hina nýju tækni til að skila hagnaði inn í kerfið og núna þolir þetta ekki lengri bið. Þetta er stærsta verkefni tónlistarbransans í dag og það þarf að taka á því áður en það brestur á með atgervisflótta úr greininni. En ég er bjartsýnn á að við stöndum núna við þröskuld þar sem við horfum inn í nýjan heim." Jakob er fullviss um að ný og öflug verslun komi í staðinn fyrir Skífuna. „Við kveðjum Skífuna auðvitað með söknuði. Ég var viðstaddur opnunina á sínum tíma og þetta var glæsilegasta tónlistarverslun sem hafði litið dagsins ljós á Íslandi. En það brustu forsendur fyrir þessari tilteknu vöru." Hann tekur fram að smærri plötuverslanir á borð við 12 Tóna og Havarí muni í staðinn annast plötusöluna í miðborginni. Verslunin Skífan á Laugaveginum hættir starfsemi í sumar. Óvíst er hvaða verslun kemur í hennar stað en sumir vilja reka þar tískuverslun. Húsnæði Skífunnar er í eigu fasteignafélagsins Reitir. Í samtali við Fréttablaðið staðfesti Inga Rut Jónsdóttir, forstöðumaður hjá Reitum, að nokkrir aðilar hefðu haft samband út af húsnæðinu. Sumir vilji reka þar tískuverslun en aðrir hafi annars konar rekstur í huga. Hún vildi ekki greina frá því hvað kosti að leigja húsnæðið og gat heldur ekki sagt til um hvenær samið yrði við nýjan rekstraraðila. Stutt er síðan Fréttablaðið greindi frá brotthvarfi Regnbogans úr miðborginni og núna fylgir Skífan í kjölfarið. Þrátt fyrir það örvæntir Jakob Frímann ekki. „Því má ekki gleyma að það er verið að leggja lokahönd á „cinematheque" í Tjarnarbíói og því ber líka að fagna að Austurbæjarbíó er að verða að öflugu sýningarhúsi á ný. Eitt hverfur á braut og annað kemur í staðinn," segir hann um leið og hann kveður Regnbogann og Skífuna. „Við þökkum því góða fólki fyrir samferðina. Síðan kemur eitthvað skemmtilegt og ferskt vonandi í staðinn." freyr@frettabladid.is
Mest lesið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Í festival gír með Icewear Lífið samstarf Mikil eftirspurn eftir miðum á Eclipse Festival - „Augnablik sem aldrei gleymist“ Lífið samstarf Bylgjulestin brunar á Flúðir Lífið samstarf Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Lífið Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Gagnrýni Fleiri fréttir Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Sjá meira