Stór plötusnúðakeppni haldin 20. september 2010 12:00 Andrés Bertelsen og Pétur Kristófer Oddsson skipuleggja plötusnúðakeppni á Nasa 25. september. fréttablaðið/valli
Plötusnúðakeppni verður haldin á Nasa laugardaginn 25. september. Þar verður keppt í tveimur aldurshópum, fyrir 12 til 20 ára og 20 til 40 ára. „Okkur finnst senan hérna á Íslandi vera svo lokuð. Við viljum fá að sjá hvað krakkarnir eru að gera í kjallaranum heima hjá sér,“ segir Andrés Bertelsen, sem skipuleggur keppnina ásamt Pétri Kristófer Oddssyni. Dómnefndin verður ekki af verri endanum. Hún verður skipuð reynsluboltunum Dj Margeiri, Jóni Atla, Casanova, Adda Exos og Dj Sóleyju. Hver keppandi hefur tíu mínútur til að sýna listir sínar og vinningshafar fá síðan að láta ljós sitt skína að keppni lokinni. Gefin verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hvorum flokki. Sérsmíðaðir hringir verða í verðlaun, inneign á húðflúrstofu, plötusnúðagræjur og fleira. Kynnir verður Erpur Eyvindarson. Andrés og Pétur vilja með keppninni breyta viðhorfi fólks gagnvart raf- og hip hop-tónlist sem þeim finnst hafa verið full neikvætt. „Álit fólks á þessari tónlist hefur verið tengt svolítið eiturlyfjum og öðru. Á sínum tíma var rokkið tónlist djöfulsins og hip hopið tengt glæpamenningu en svo hefur þetta breyst. Við stefnum á að gera þetta á hverju ári og vonum að þetta verði enn þá stærra,“ segir Andrés. Plötusnúðakeppnin fyrir yngri keppendurna hefst klukkan 14 og sú síðari klukkan 21. Ágóði af 12-20 ára keppninni rennur óskiptur til Vímulausar æsku. Á meðal annarra flytjenda sem troða upp verður breski plötusnúðurinn King Unique, Captain Fufanu, Original Melody og Dj Leibbi. Skráning fer fram á Djkeppni.is. - fb
Mest lesið Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir Lífið Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Lífið Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Lífið Ástardúett Stuðmanna í nýjum búning Tónlist „Fallegur fjölskyldusamruni“ Lífið 90% þeirra sem upplifa hárlos meðhöndla það ekki - það er þó hægt Lífið samstarf Öðruvísi líf: „Veistu Hrund, þú ert eiginlega eins og Forrest Gump“ Áskorun Trúlofuðu sig á sama stað og þau byrjuðu saman Tónlist Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Lífið 50+: Þegar börnin búa enn heima hátt í þrítugt Áskorun Fleiri fréttir Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Færa Vestur-Íslendingum rausnarlega afmælisgjöf Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Aðstandendur Secret Solstice standa að nýrri hátíð sem hefst með almyrkvanum Einlæg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ „Þetta var eins og draumur sem ætlaði aldrei að taka enda“ Sjá meira