Lífið

Palli á ábreiðuplötu Barða

Safnplata með bestu lögum Bang Gang kemur í búðir eftir mánuð.
Safnplata með bestu lögum Bang Gang kemur í búðir eftir mánuð.
Safnplata með Bang Gang, hljómsveit Barða Jóhannssonar, kemur í búðir eftir mánuð. Með henni fylgir aukadiskur þar sem lög sveitarinnar verða í nýjum útgáfum Páls Óskars, Diktu, Daníels Ágústs og fleiri flytjenda.

„Þetta er mjög skemmtilegt. Þetta er eiginlega samansafn af þeim sem mér finnst skemmtilegir hérna heima,“ segir Barði um þá sem koma við sögu á aukadisknum. Aðrir sem eiga þar lög eru Mammút, Eberg, Arnar úr Leaves, Singapore Sling, Bjarni úr Cliff Clavin, Bloodgroup og Ourlives. Barði hefur áður unnið með Páli Óskari við gerð plötunnar Deep Inside sem kom út 1999. Dikta, Ourlives og Cliff Clavin eru síðan allar á mála hjá útgáfufyrirtækinu Kölska þar sem Barði heldur um stjórnartaumana.

Tvö lög koma tvisvar fyrir á ábreiðuplötunni, eða One More Trip í flutningi Singapore Sling og Diktu og Sacred Things sem Páll Óskar og Bloodgroup flytja. „Það er bara gaman því þau eru í gjörsamlega ólíkum útgáfum,“ segir Barði.

Bang Gang hefur verið starfandi í tólf ár og Barða fannst kominn tími á safnplötu fyrir íslenskan markað. Upphaflega áttu þó lög sem ekki komust á plötur hans að vera á aukadisknum. „Ég átti svo mikið af aukaefni og mig langaði að hafa það með. Síðan fór ég að hugsa: „Af hverju að gefa út „best of“ og setja svo „worst of“ með. Mér fannst það ekkert spennandi“,“ segir hann. Plata með nýjum lögum frá Bang Gang er síðan væntanleg næsta vor. -fb





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.