Lífið

Spilar lög af nýrri plötu

ólöf arnalds Ólöf spilar lög af væntanlegri plötu sinni í Þjóðmenningarhúsinu á laugardaginn.
ólöf arnalds Ólöf spilar lög af væntanlegri plötu sinni í Þjóðmenningarhúsinu á laugardaginn.
Söngkonan Ólöf Arnalds heldur tónleika í Þjóðmenningarhúsinu á laugardagskvöld. Þar flytur hún efni af væntanlegri plötu sinni, Innundir skinni. Á plötunni, sem kemur út í vor, eru fjölbreyttari útsetningar og hljóðfæranotkun en á fyrstu plötu hennar, Við og við. Helstu hljóðfæraleikarar plötunnar utan Ólafar eru þeir Davíð Þór Jónsson og Skúli Sverrisson. Kjartan Sveinsson úr Sigur Rós stjórnaði upptökum. Davíð Þór mun einmitt spila með Ólöfu á tónleikunum á laugardaginn, sem hefjast klukkan 20. Miðaverð er 2.000 krónur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.