Mikil spenna fyrir næstu Bond-mynd 1. apríl 2010 05:30 Persónur og leikendur í Bond-Slúðri Rachel Weisz hefur verið orðuð við hlutverk illmennisins í næstu James Bond-mynd. Hún hefur lýst því yfir að hún hefði ekkert á móti því að vera Bond-stúlka. Olivia Wilde og Freida Pinto hafa verið orðaðar við myndina sem Bond-stúlkur og Lady Gaga er sögð eiga að semja titillagið. Hvað sem því líður er nokkuð ljóst að Daniel Craig verður James Bond í mynd númer 23.
Það er miklu fremur regla heldur en hitt þegar umtal, slúður og vangaveltur byrja að flæða yfir fjölmiðla um næstu James Bond-myndina. Sú herferð virðist hafin og að venju er hún misgáfuð. Ekkert formlegt hefur verið gefið út um hvað 23. Bond-myndin fjallar. Eftir að Daniel Craig tók við smókinginum hefur þó verið ákveðinn uppbygging og rauður þráður og þótt ekki sé vitað hvort þriðja myndin verði sú síðasta með Craig í hlutverki leyniþjónustumannsins eður ei gera Bond-sérfræðingar sér ákveðnar hugmyndir um að leyniþjónustumaðurinn stöðvi heimsyfirráðarhugmyndir glæpahringsins Quantum sem kynntur var til leiks í fyrstu myndinni, Casino Royal. Höfuðóvinir James Bond hafa alltaf verið karlmenn þótt vissulega hafi sumar konur viljað sjá Bond undir græna torfu...til að byrja með. Einhver heitasta umræðan á netinu um þessar mundir er sú að yfirmaður Quantum-hringsins verði kona og að hún verði leikin af Rachel Weisz. Weisz ku víst hafa upplýst að hún hefði ekkert á móti því að vera Bond-stúlka og leika á móti Daniel Craig en þau eru einmitt að leika saman í annarri mynd sem nefnist DreamHouse. Þá hafa ófáir netmiðlar bent á að Weisz og Sam Mendez, leikstjóri Bond 23, hafi átt í stuttu ástarsambandi á árum áður. Leikarar eru auðvitað ákaflega snjallir að lýsa einhverju óræðu yfir þegar nær dregur frumsýningu þeirra nýjustu verka. Ef höfuðóvinur Bond yrði kvenkyns væri þetta enn ein kúvendingin á kvenvæðingu Bonds. Það er ekkert langt síðan að Judi Dench tók að sér hlutverk yfirmannsins M hjá MI5 og hún hefur í undanförnum myndum náð að þróa með sér óþolinmæði gagnvart kvensemi James Bond og mistökum hans, eitthvað sem gömlu karlfuskarnir virtust miklu fremur öfunda hann af heldur en hitt. En það ríkir ekki bara mikil spenna um hver verði óvinur Bond. Heldur eru menn alltaf reiðubúnir til að veðja háum fjárhæðum á næstu Bond-stúlkurnar. Þær Olivia Wilde og Freida Pinto hafa báðar verið orðaður við hlutverkið en eins og venjan er eru aðstandendur Bond þöglir sem gröfin; slík kynning er yfirleitt mjög vel skipulögð og kemur oftar en ekki á óvart. Og svo er það lagið. Vandræðagemlingurinn Amy Winehouse var mjög fljótlega orðuð við titillagið enda minnir rödd hennar óneitanlega á gömlu James Bond-söngkonurnar á borð við Shirley Bassey. Amy virðist hins vegar hafa drukkið sig frá því og nýjustu fregnir úr herbúðum Bond-myndarinnar herma að sjálf Lady Gaga verði fengin til að semja og flytja næsta Bond-lag. Þetta ætti auðvitað ekki að koma neinum á óvart, Jack White og Alicia Keys voru með síðasta lagið sem þótti heppnast ákaflega vel og það væri vissulega athyglisvert að heyra hvað furðufuglinn Gaga myndi gera við eitt stykki Bond-slagara. Leikkonan Rachel Weisz mætti á frumsýningu „Definitely, Maybe“ í New York í þessum gráa kjól. Hið rauða breiða belti og skórnir í stíl setja punktinn yfir i-ið. LOS ANGELES, CA - FEBRUARY 22: Actress Freida Pinto arrives at the 81st Annual Academy Awards held at Kodak Theatre on February 22, 2009 in Los Angeles, California. (Photo by Jason Merritt/Getty Images) Óskarsverðlaun Kjóll asdf asdf
Mest lesið Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Lífið Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Lífið Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Lífið „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Lífið Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Lífið Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Lífið Færa Vestur-Íslendingum rausnarlega afmælisgjöf Lífið Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Lífið „Þegar ég hitti þá fyrst pissaði ég á mig“ Lífið Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar Lífið Fleiri fréttir „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Færa Vestur-Íslendingum rausnarlega afmælisgjöf Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Aðstandendur Secret Solstice standa að nýrri hátíð sem hefst með almyrkvanum Einlæg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ „Þetta var eins og draumur sem ætlaði aldrei að taka enda“ „Þegar ég hitti þá fyrst pissaði ég á mig“ Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar „Fullkomin viðbót“ hjá Selmu og Sölva Uppáhalds sumardrykkur Gerðar: „Ég fæ ekki nóg“ Felix kveður Eurovision með tárum Matti og Brynhildur selja slotið og stefna á sveitasæluna Bríet og Reykjavíkurdætur á Kvennavöku annað kvöld Styrktarforeldrið Hafdís er fundin Quarashi aftur á svið Mikil stemning á Íslandshátíð í Tívólí í Kaupmannahöfn Merktur LXS skvísunum fyrir lífstíð Kristín og Þorvar gáfu syninum nafn á þjóðhátíðardaginn Sjá meira