Sigurjón fellur fyrir sænskunni 20. febrúar 2010 02:00 elskar svíþjóð Sigurjón Kjartansson lærir nú sænsku að miklum móð og hefur fallið fyrir tungumálinu. fréttAblaðið/anton „
Ég hef hægt og rólega byggt upp ást á Svíþjóð," segir háðfuglinn og handritshöfundurinn Sigurjón Kjartansson. Sigurjón er sestur á skólabekk og hóf nýlega nám í sænsku hjá Mími-símenntun. Ást á sænskri menningu varð til þess að Sigurjón ákvað að stúdera tunguna, sem hann segist hafa fallið fyrir. Hann segir að Svíar séu fremstir þjóða á ýmsum sviðum. „Ég er fallinn fyrir sænskunni. Í popptónlist eru þeir fremstir norrænna þjóða og í ýmsu öðru, eins og kvikmynda- og sjónvarpsþáttagerð," segir hann. Alls kyns vesen hefur að sögn Sigurjóns orðið til þess að hann hefur ekki getað sinnt náminu sem skyldi undanfarið. Hann hefur þó reynt að halda dampi, meðal annars með því að horfa á sænskt sjónvarpsefni. „Ég hef reynt að senda kennaranum tölvupósta á sænsku og svo hef ég horft á sænsku Eurovision-forkeppnina, Melodifestivalen," segir Sigurjón. Keppnin er einn af stærstu sjónvarpsviðburðum ársins í Svíþjóð og Sigurjón sparar ekki stóru orðin þegar hann lýsir því sem fyrir augu ber: „Stórkostlegt! þeir kunna að halda Eurovision-forkeppnir. Það er miklu hærri standard á þessu heldur en hér," segir hann og bætir við að Svíinn sé bestur í flestu. Sigurjón hefur mikið komið að handritaskrifum fyrir sjónvarp undanfarið. Spurður hvort sú vinna sé ástæðan fyrir náminu segist hann ekki útiloka neitt. „Ég hef pínulítil sambönd þar, en ég segi ekki að ég sé endilega að gera þetta af faglegum ástæðum." - afb
Mest lesið Skúli hannaði hof fyrir Grímu Lífið Kom með blóðugar tær í mark eftir heilt maraþon berfættur Lífið Eyðir afmælisdegi dótturinnar í fasteignadeilur Lífið Tóku hlé í miðju hlaupi til að halda tónleika Lífið Fann nýjan tilgang í kjölfar lömunar í kraftlyftingum Lífið Eini dagurinn sem hægt er að fara upp í Gróttuvita Lífið Krakkatía vikunnar: Menning, bangsar og líffæri Lífið Geggjaðar gellur í gæsun Grímu Thorarensen Lífið Veggjadans á Hörpu og snyrtivörur úr sælgæti Lífið Serena Williams opnar sig um notkun þyngdarstjórnunarlyfja Lífið Fleiri fréttir Kom með blóðugar tær í mark eftir heilt maraþon berfættur Tóku hlé í miðju hlaupi til að halda tónleika Skúli hannaði hof fyrir Grímu Fann nýjan tilgang í kjölfar lömunar í kraftlyftingum Eyðir afmælisdegi dótturinnar í fasteignadeilur Eini dagurinn sem hægt er að fara upp í Gróttuvita Krakkatía vikunnar: Menning, bangsar og líffæri Veggjadans á Hörpu og snyrtivörur úr sælgæti Miklar tilfinningar og mikil stemning í Reykjavíkurmaraþoninu Serena Williams opnar sig um notkun þyngdarstjórnunarlyfja Fréttatía vikunnar: Svíþjóð, sektir og vextir Bjargaði lífi systur sinnar ellefu ára gömul Níu ástæður fyrir því að stunda morgunkynlíf Bragðgóðar kalkúnabollur í kókos og límónusósu Hörður Björgvin kom Móeiði á óvart HAF-hjónin breyta vídjóleigu í bakarí Ari og Helga Lilja flytja á milli glæsihúsa í Garðabæ Mamman grét, eiginmaðurinn fraus en Veru var létt Innlit í nýtt svefnhólfahótel við Hverfisgötu Millie Bobby Brown og Bongiovi hafa ættleitt stúlku Fullkomið og fór langt fram úr væntingum Þungarokkstjarna lést í mótorhjólaslysi Lil Nas X handtekinn og vistaður á sjúkrahúsi Fjögurra daga Njáluhátíð sett á Hvolsvelli í kvöld Tvö maraþon eftir af sex: Úr þoku í sól, misörlátir ferðamenn og hálendið kvatt „Sjúllaður“ sítrónu og jarðaberja næturgrautur Draumadís Þórhildar og Hjalta komin í heiminn Svona verður dagskráin á Menningarnótt Breskur auðkýfingur brjálaður og norsku kafararnir of dýrir Nafn sonarins innblásið af Frakklandi Sjá meira