Sýnd 390 milljónum manna 20. febrúar 2010 06:00 Jóhann Sigfússon Heimildarmyndin Living on the Edge hefur verið seld til National Geographic.
Heimildarmyndin Living on the Edge hefur verið seld til sjónvarpsstöðvarinnar National Geographic. Um 390 milljónir manna horfa á hana á degi hverjum. „Maður kemst ekkert lengra með heimildarmynd en að selja hana þessum mönnum," segir leikstjórinn Jóhann Sigfússon. Heimildarmynd hans Living on the Edge hefur verið seld til sjónvarpsstöðvarinnar National Geographic International. Þar verður hún sýnd víðsvegar um heiminn í haust en samkvæmt nýjustu tölum horfa um 390 milljónir manna á stöðina á degi hverjum. Þrátt fyrir mikinn áhuga erlendis frá verður hún ekki sýnd í Ríkissjónvarpinu. „Núverandi dagskrárstjóra Ríkissjónvarpsins fannst myndin ekki vera nógu góð til að Sjónvarpið gæti sýnt hana og segir það mikið um ástand Ríkissjónvarpsins í dag," segir Jóhann og er mjög undrandi á þessari ákvörðun. Það er fyrirtækið Profilm, sem verður einmitt tuttugu ára á mánudaginn, sem framleiðir myndina. Hilmar Örn Hilmarsson samdi tónlistina og Neil McMahon er handritshöfundur og sögumaður. Ætlunin er að myndin, sem er 52 mínútna löng, sýni sálina í íslensku þjóðinni. Engin viðtöl eru í henni heldur fjallar sögumaður um það sem fyrir augu ber, þar sem íslensk náttúra er áberandi. Living on the Edge var að stórum hluta tekin á Húsavík og þar verður myndin einmitt frumsýnd í dag á Hvalasafninu. „Þetta er sætur bær sem við notuðum sem svið fyrir þessa mynd," segir Jóhann um Húsavík. „Þetta er mynd sem við gerðum út af kreppunni á sínum tíma. Í staðinn fyrir að gera Guð blessi Ísland-mynd langaði okkur að gera mynd sem myndi rétta af orðstír Íslands." Tvær aðrar myndir frá Profilm verða sýndar á National Geographic, en samt ekki fyrr en á næsta ári. Fyrst ber að nefna The Disappearing World of the Asian Elephant sem fjallar um þá staðreynd að asíski fíllinn verður útdauður eftir fimmtíu ár ef ekkert verður að gert. Hin er í svipuðum anda og Living on the Edge en gerist á Taílandi. „Við þurftum að snúa vörn í sókn því það er ekkert að gera heima. Það er gjörsamlega búið að eyðileggja kvikmyndaiðnaðinn á Íslandi," segir Jóhann. Af þeim sökum einbeitir Profilm sér nánast alfarið að erlendu efni í stað íslensks.freyr@frettabladid.is
Mest lesið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves Sjá meira