Páskaopnun Hofsós-sundlaugar 22. febrúar 2010 03:00 Forsetafrúin Dorrit Moussaeiff tók fyrstu skóflustunguna að sundlauginni ásamt þeim Steinunni og Lilju.Fréttablaðið/GVA „
Við sjáum fram á að hún gæti verið komin í gagnið um páskana,“ segir Sveinbjörn Sigurðsson, framkvæmdastjóri verktakafyrirtækisins Sveinbjörn Sigurðsson. Starfsmenn fyrirtækisins hafa séð um að reisa sundlaugina á Hofsósi sem athafnakonurnar Steinunn Jónsdóttir og Lilja Pálmadóttir gáfu íbúum bæjarins fyrir tæpum þremur árum. Upphaflega stóð til að sundlaugin yrði tilbúin um mánaðamótin nóvember/desember á síðasta ári og hún hefði því getað orðið ansi vegleg jólagjöf til Skagfirðinga. En eilitlar tafir urðu á verkinu, meðal annars vegna efnisskorts, og Skagfirðingar urðu því að bíða enn um sinn. „Þetta var allt leyst og það hefur allt staðið eins og stafur á bók í samskiptum okkar við þær,“ segir Sveinbjörn. Íbúar Hofsóss og nærsveitamenn bíða eflaust spenntir eftir því að geta stungið sér til sunds og setið í heitu pottunum og horft yfir til Drangeyjar, jafnvel látið sig dreyma um Drangeyjarsund. Og nú lítur allt út fyrir að þeir geti gert það um svipað leyti og páskarnir ganga í garð. Það vakti mikla athygli á sínum tíma þegar þær Steinunn og Lilja skrifuðu undir viljayfirlýsingu um að gefa íbúum Hofsóss sundlaug hinn 19. júní 2007. Dorrit Moussaeiff tók fyrstu skóflustunguna að sundlauginni ásamt þeim Steinunni og Lilju í apríl 2008 og í kjölfarið var hafist handa. Sundlaugin sjálf verður 25 metrar að lengd en innifalið í gjöfinni er vegleg þjónustumiðstöð. - fgg
Mest lesið Lést af völdum alnæmis Lífið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Lífið Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Lífið Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás Lífið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið Fleiri fréttir Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Sjá meira