Rúnagaldur ryður brautina 19. febrúar 2010 05:00 Elías Snæland Jónsson Rúnagaldur er fyrsta bók Elíasar sem fær dreifingu erlendis. Hún kemur út seinni part næsta árs á vegum Aufbau. fréttablaðið/valli „
Það er afskaplega gaman að Þjóðverjar skuli hafa áhuga á þessari bók,“ segir rithöfundurinn Elías Snæland Jónsson. Bók hans, Rúnagaldur, verður gefin út í Þýskalandi á næsta ári og er þetta fyrsta bók Elíasar sem fær dreifingu erlendis. Ryður hún vonandi brautina fyrir næstu bækur hans. „Ég er mest hissa á því hvað þeir voru fljótir til því þeir höfðu samband strax í byrjun desember, nokkrum vikum eftir að bókin kom út.“ Bókin kemur út hjá forlaginu Aufbau sem er mjög virt á sínu sviði og ætti því að fá góða kynningu. Elías, sem hefur lengi fengist við ritstörf, hefur gefið út þó nokkuð af barna- og unglingabókum. Nágrannalöndin hafa sýnt áhuga á að gefa þær út en aldrei hefur orðið af því. Hann vill þó ekki meina að langþráður draumur sé að rætast með útrásinni til Þýskalands. „Maður er fyrst og fremst að skrifa fyrir íslenskan markað og íslenska neytendur. Það er rós í hnappagatið ef útlendingar hafa áhuga á að gefa út bækur eftir mann en það er ekkert sérstakt keppikefli í sjálfu sér.“ Rúnagaldur er spennusaga sem tengir saman sögur Eddukvæðanna um norrænu goðin og þann áhuga sem sumir af forystumönnum þriðja ríkisins höfðu á kvæðunum. Bókin er einnig sú fyrsta sem útgefandinn Skrudda selur á erlendri grundu. - fb
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Fleiri fréttir Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Sjá meira