Misheppnaðar ráðningar 1. apríl 2010 06:00 Þykir ekki hafa passað í hlutverk kjarnorkueðlisfræðings í The World Is Not Enough.
Kvikmyndanördar velta ýmsu fyrir sér. Á vefsíðu breska blaðsins Sun er rætt um misheppnað val á leikurum. Leikkonan Denise Richards kemst þar á blað fyrir hlutverk sitt sem Dr. Christmas Jones í Bond-myndinni The World Is Not Enough. Lesandi blaðsins vill meina að hún hafi ekki verið trúverðug sem kjarnorkueðlisfræðingur og eru eflaust margir hjartanlega sammála honum. „Ég veit hvernig Bond-myndir geta verið en samt hef ég aldrei séð vel vaxinn kjarnorkueðlisfræðing hlaupa um í níðþröngum fötum,“ skrifaði hann. Annar lesandi er undrandi á ráðningu Vals Kilmer í hlutverk leðurblökumannsins í Batman Forever. „Hvað er málið? Náunginn er alltof lítill. Ég heyrði að hann hefði þurft að standa á palli í atriðunum með Nicole Kidman. Það er eitthvað rangt við það.“ Einn lesandi blaðsins er ósáttur við Tobey Maguire sem köngulóarmanninn Pétur Parker. „Hann var alltof mikil veimiltíta sem Pétur Parker. Áður en hann fékk ofurkraftana var Pétur Parker algjör nörd. En eftir að Maguire byrjaði að skjóta köngulóarvefnum út um allt gekk hann um með aumingjasvip eins og hvolpur sem hafði verið sparkað í.“ Aðrir sem fá skömm í hattinn eru Uma Thurman sem þótti ekki hafa kynþokkann sem þurfti til í The Avengers og belgíska buffið Jean-Claude Van Damme, einfaldlega vegna allra myndanna sem hann lék í. „Hvort sem hann lék löggu á tímaflakki eða öryggisvörð á hokkíleik hljómaði hann alltaf eins og ferðamaður sem var nýkominn til landsins frá Belgíu,“ skrifaði óánægður lesandi.
Mest lesið Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Lífið Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Lífið Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Lífið Hall og Oates ná sáttum Lífið Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Lífið Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Lífið Embla Wigum og Lindsey Lohan glæsilegar á rauða dreglinum Lífið Hannaði innsetningargallann í þrívíddarforriti vegna tímaþröngar Lífið Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Lífið Fleiri fréttir Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Hall og Oates ná sáttum Embla Wigum og Lindsey Lohan glæsilegar á rauða dreglinum Hannaði innsetningargallann í þrívíddarforriti vegna tímaþröngar Hóta enn á ný að úthýsa vinsælli „spýtukarlanekt“ Hugleiks Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Ragnheiður og Benedikt eiga von á jóladreng Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Elín Dís og Sigurður keyptu raðhús í Fossvogi á 175 milljónir Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Anton Corbijn heiðursgestur RIFF Með um 300 tegundir af rósum í garðinum sínum Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Fyrsta tónlistarfólkið á almyrkvahátíðinni kynnt til leiks Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Aldraður boltasækir steig síðasta dansinn Suðrænn og ferskur þeytingur að hætti Jönu Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum „Dýrmætt að fá að hafa þetta svona persónulegt“ Eigendaskipti á Kaffi Laugalæk: Breyta til en lofa sömu stemningu Leifur Andri og Hugrún trúlofuð Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Superstore-leikari látinn Mugison gekk í það heilaga við litla útiathöfn Krakkatían: Afmælistónleikar, maraþon og bílpróf Sjá meira