Grænland datt í lukkupottinn 25. ágúst 2010 12:07
Fréttir í gær um að gas hefði fundist undan ströndum Grænlands og vísbendingar um olíu eru taldar auka áhuga alþjóðlegra olíufyrirtækja að hefja olíuleit allt í kringum þetta næsta nágrannaríki Íslands.Aðeins eru liðnar sex vikur frá því olíuborpallur og borskip á vegum skosks olíuleitarfyrirtækis Cairn Energy hófu að bora tvær holur í hafinu norðvestur af höfuðstaðnum Nuuk, um 175 kílómetra frá Diskó-eyju. Félagið tilkynnti svo í gær að það hefði komið niður á gas og vísbendingar væru einnig um að þarna væri olía.Þessar fréttir vöktu heimsathygli í gær enda hefur Jarðfræðistofnun Bandaríkjanna spáð því að undan ströndum Grænlands leynist einhverjar mestu ófundnu olíulindir jarðar. Þótt skýrt væri tekið fram að ekki væri búið að finna gaslind í vinnanlegu magni lýstu ráðamenn skoska félagsins því yfir að gasfundurinn gæfi tilefni til bjartsýni og í dönskum blöðum sáust fyrirsagnir eins og að Grænland hefði dottið í lukkupottinn.Víst þykir að fréttirnar verða til þess að auka áhuga alþjóðlegra olíufyrirtækja á olíuleit við Grænland og hér á Íslandi segir Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri í viðtali við Fréttablaðið að þetta verði einnig til að auka áhuga á olíuleit við Ísland.En ekki eru allir ánægðir. Greenpeace-samtökin, sem eru með skip sitt nærri borpallinum við Grænland, sendu frá sér yfirlýsingu í gær vegna gasfundarins þar sem þau hvöttu til þess að olíuboranir yrði bannaðar á heimskautasvæðum. Þess má geta að Drekasvæðið, þar sem Íslendingar buðu út olíuleit í fyrra, er norðan heimskautsbaugs.
Mest lesið Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Bandarísk herflugvél fórst í Írak Erlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Innlent Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Innlent Áætla að 188 frelsissviptir útlendingar hefðu verið vistaðir í nýja úrræðinu Innlent Á annan tug ferðalanga fastir á Holtavörðuheiði Innlent Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Innlent Kristinn ekki bænheyrður Innlent Sigríður Ingibjörg ráðinn nýr framkvæmdastjóri BSRB Innlent Fleiri fréttir Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Áætla að 188 frelsissviptir útlendingar hefðu verið vistaðir í nýja úrræðinu Sigríður Ingibjörg ráðinn nýr framkvæmdastjóri BSRB Á annan tug ferðalanga fastir á Holtavörðuheiði Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Umdeild málsókn, sviptingar í fjölmiðlum og verðhækkanir Þó nokkur snjóflóð fallið og loka Flateyrarvegi í kvöld Fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir hópárás Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Sýkna Landsbankann af kröfum Quang Le Kristinn ekki bænheyrður Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Fimm ár fyrir stangir fullar af amfetamíni Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Umsókn Miðflokksins í klúbb evrópska íhaldsmanna ekki svarað Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Samtal hafið um Ísafjarðarflug Ferðamenn valdi fleiri slysum en ölvaðir eða ungir ökumenn Miðflokkur kynnir sex efstu í Garðabæ Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Norðanhríð fyrir vestan og Ísland í máli gegn Ísrael Þau eru á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Óvissustig í Súðavíkurhlíð Sjá meira