Lífið

Lúxus Blóðflokkur í kvöld

Lúxusútgáfan af Bloodgroup Hljómsveitin og strengjafólk. Litla stúlkan heitir Snæfríður Hekla og er dóttir Halls.
fréttablaðið/stefán
Lúxusútgáfan af Bloodgroup Hljómsveitin og strengjafólk. Litla stúlkan heitir Snæfríður Hekla og er dóttir Halls. fréttablaðið/stefán

Hljómsveitin Bloodgroup heldur útgáfutónleika í Iðnó í kvöld.

„Þetta verður lúxusútgáfa af Bloodgroup. Fjórir strengjaleikarar spila með okkur og þeir Styrmir Hauksson og Benedikt Freyr, sem voru einu sinni í bandinu, koma og spila sína parta,“ segir Hallur Kr. Jónsson, elsti bróðirinn í Bloodgroup, um útgáfutónleikana fyrir plötuna Dry Land sem fara fram í Iðnó í kvöld. Síðan spilar sami hópur í Græna hattinum á Akureyri á laugardagskvöldið.

Jónsbörn eru þrjú í Bloodgroup, Ragnar og Lilja auk Halls, en fjórði meðlimurinn er Færeyingurinn Janus Rasmussen. Því verða útgáfutónleikar í Færeyjum líka, 13. mars í Perlunni í Þórshöfn. „En þá verður bandið bara eins og það á að sér að vera, bara við fjögur, því það er bara of dýrt að fljúga út með allan hópinn,“ segir Hallur.

Dry Land fékk frábæra dóma þegar platan kom út í fyrra og Bloodgroup er með tvær tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna, í flokkunum Poppplata ársins og Lag ársins (fyrir lagið „This Heart“). Hallur segir gott að vera með góða plötu í höndunum og að ýmislegt sé fram undan hjá bandinu.

„Við erum að þreifa fyrir okkur með útgáfu í útlöndum og bíðum eftir rétta tækifærinu með það. Við förum í túr til Þýskalands í apríl og reynum að nýta hann eitthvað og svo eru einhverjar tónlistarhátíðir farnar að hlaðast upp fyrir sumarið. Við höldum bara áfram að harka.“

drgunni@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.