Lífið

Plötu Seabear lekið á netið

Nýjustu plötu hljómsveitarinnar Seabear, We Built a Fire, hefur verið lekið á netið. fréttablaðið/arnþór
Nýjustu plötu hljómsveitarinnar Seabear, We Built a Fire, hefur verið lekið á netið. fréttablaðið/arnþór

Nýjustu plötu hljómsveitarinnar Seabear, We Built a Fire, hefur verið lekið á netið, rúmum mánuði áður en hún kemur út.

„Svona er þetta bara. Það er ekki hægt að gera neitt í þessu,“ segir Sindri Már Sigfússon úr Seabear. „Ég sá þetta fyrir nokkrum dögum og lét plötufyrirtækið vita. Þeir eru að reyna að gera tilraun til að láta loka á þessa síðu sem er komin með þetta. En ef ein er komin með þetta er þetta komið út um allt,“ segir Sindri og leiðir líkum að því að erlendir blaðamenn sem fengu kynningardiska í desember hafi sett plötuna á netið. „Svo veit maður ekkert hversu mikil áhrif þetta hefur á plötusölu. Ég veit að platan frá Grizzly Bear lak á netið þremur mánuðum áður en hún kom út. Þeir voru leiðir yfir því en svo þegar hún kom út fór hún á Billboard-listann.“

We Built a Fire átti upphaflega að koma út síðasta sumar en henni var frestað vegna þess að Sindri og félagar voru ekki nógu ánægðir með útkomuna. Engu að síður er þó nokkuð liðið síðan platan kláraðist en að sögn Sindra eru vinnubrögðin þannig hjá útgáfufyrirtækinu Morr að oft líður hálft ár þangað til plata kemur út eftir að lokið hefur verið við hana. „Þetta er aðallega út af kynningarmálum. Þeir senda plötuna á alla helstu fjölmiðla og gá hvort þeir fái góð viðbrögð,“ segir hann. Plötufyrirtækið Borgin, sem gefur Seabear út á Íslandi, óskaði einmitt eftir því að gefa plötuna út fyrir jólin hérna heima en kom að lokuðum dyrum.

Seabaer fer í tónleikaferð um Þýskaland til að fylgja plötunni eftir. Eftir það verður ferðinini heitið til Bandaríkjanna. „Við erum að gíra okkur andlega upp í þetta. Við erum öll spennt að spila nýju lögin og sjá hvernig fólk tekur í þau,“ segir Sindri.

freyr@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.