Frumflutt verk hjá Caput 13. mars 2010 06:00 Tónlist Caput-hópurinn í einni af sínum mörgu samsetningum, en hann er afkastamikill í hljóðritunum og tónleikahaldi um þessar mundir.
Á morgun kl. 17 verður helsta súpergrúppa landsins, Caput, að spila í Sölvhóli, sal Listaháskóla Íslands við Sölvhólsgötu, og verða sjö ópusar á efnis-skránni. Tónleikarnir eru samstarfsverkefni við tónlistardeild Listaháskólans. Meðal þeirra verka sem flutt verða í gamla Landsmiðjuhúsinu er Luminous Flux eftir hið margverðlaunaða kóreska tónskáld Sungji Hong. Verk hennar hafa verið flutt um allan heim. Eftir japanska tónskáldið Malika Kishino verður svo leikið verkið Himmelsleiter, eða Himnastiginn. Hvorugt þessara verka hefur áður heyrst hér á landi. Þá verður flutt slagverkssóló eftir gríska tónskáldið Iannis Xenakis sem hér er að góðu kunnugt. Við þetta tækifæri verður einnig frumflutt glænýtt einleiksverk fyrir óbó eftir Þuríði Jónsdóttur, sem nýlega var tilnefnd til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs, sem og verkið Krónan eftir Hafdísi Bjarnadóttur, en það hefur áður verið flutt erlendis. Síðast en ekki síst leikur Caput-hópurinn ný verk eftir tvo nemendur tónsmíðadeildar LHÍ, þá Þorbjörn G. Kolbrúnarson og Junichi Matsumoto. Starfsárið hjá Caput-hópnum er komið á fullt skrið. Það sem af er ári hafa verið haldnir tvennir umfangsmiklir tónleikar, þeir fyrstu á Myrkum músíkdögum í lok janúar og um síðustu helgi var frumflutningur á Hallgrímspassíu Sigurðar Sævarssonar í Njarðvíkurkirkju. Verður passían endurflutt á Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju í byrjun apríl svo þar gefst áhugasömum að heyra hana. Viku seinna, 21. mars, leikur Caput á vegum Tóneyjar í Gerðubergi, dagskrá byggða á lögum eftir Guðna Franzson við sögu Guðrúnar Helgadóttur, Ástarsögu úr fjöllunum, og verður söngvarinn Egill Ólafsson þar í aðalhlutverki. Þá eru fram undan í maí tónleikar þar sem frumfluttir verða tveir nýir íslenskir einleikskonsertar: píanókonsert eftir Hauk Tómasson (einleikari Víkingur Heiðar Ólafsson) og konsert fyrir kontrabassa eftir Snorra Sigfús Birgisson (einleikari Hávarður Tryggvason) en Snorri verður jafnframt stjórnandi á tónleikunum. Um miðjan maí verður önnur dagskrá Tóneyjar í Gerðubergi, en þá syngur Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzosópran ásamt Caput-hópnum verk Hauks Tómassonar, sönglagaflokkinn Grannmetislög, við texta eftir Þórarin Eldjárn. Flokkurinn hefur sent frá sér nokkra diska á undanförnum misserum: Verkið Örsögur eftir Hafliða Hallgrímsson sem byggt er á sögum eftir Daniil Kharms kom út nú í desember hjá fyrirtækinu Signum Records. Sögumaður er Simon Callow. Diskurinn Funkhaus-Konzerte, sem gefinn er út af WDR-ríkisútvarpsstöðinni þýsku og inniheldur upptökur frá tónleikum í Köln frá því í apríl 2009 er einnig kominn út. Var Caput-hópnum boðið að koma fram á tónleikunum til að frumflytja verkið Area eftir Günter Steinke, prófessor í tónsmíðum í Essen, en það er samið sérstaklega fyrir Caput. Flaututónlist Toshio Hosokawa, í flutningi Kolbeins Bjarnasonar og Caput-hópsins undir stjórn Snorra S. Birgissonar, kemur út hjá Naxos í desember á þessu ári og tónverkin Tears of Dionysius eftir danska tónskáldið Lars Graugaard og samnefnd og umdeild kvikmynd koma út saman á næstunni í CD- og DVD-formi. Verkin voru frumflutt í Háskólabíói á Listahátíð árið 2006. pbb@frettabladid.is
Mest lesið Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Lífið Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Lífið Synir Britney gengu tískupallinn í París Tíska og hönnun Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Lífið Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið Í jólaskapi í júní Menning „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Fleiri fréttir Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Sjá meira