Lífið

Ný leikflétta hálfvitanna

Ljótu hálfvitarnir hafa æft grimmt að undanförnu fyrir tvenna útgáfutónleika sína.
Ljótu hálfvitarnir hafa æft grimmt að undanförnu fyrir tvenna útgáfutónleika sína. fréttablaðið/valli
Grallararnir í Ljótu hálfvitunum hafa sent frá sér sína þriðju plötu. Rétt eins og fyrri plöturnar heitir hún ekki neitt og er auk þess keimlík hinum tveimur í útliti.

Ljótu hálfvitarnir hafa undanfarin ár verið með vinsælli ballhljómsveitum landsins og hafa þær vinsældir endurspeglast í plötusölunni. Fyrsta platan seldist í rúmlega 4.000 eintökum og sú næsta á eftir, sem hafði að geyma slagarann Lukkutröllið, seldist örlítið minna.

„Hún er rokkaðri en síðasta plata, ef eitthvað er,“ segir Ármann Guðmundsson, einn af hálfvitunum níu, um nýjasta afkvæmið. „Síðasta plata var voða fínpússuð en þessi er grófgerðari. Við unnum með öðrum upptökustjóra, Flex Árnasyni. Okkur langaði að prófa eitthvað nýtt og athuga hvernig við myndum hljóma með einhverjum öðrum. Við lítum alla vega þannig á að þessi leikflétta hafi gengið upp hjá okkur.“

Partílagið Gott kvöld er þegar farið að heyrast í útvarpinu og gefur tóninn fyrir sumarið, þar sem sungið er um samkvæmi sem fer aðeins úr böndunum. Annars eru yrkisefni hálfvitanna á svipuðum slóðum og áður: Gleði, bjór, konur, dans og ást. Meira að segja hafið kemur við sögu, enda þykja hálfvitarnir flinkir í sjómannalögum.

Þriggja manna brasssveit setur svip á nokkur lög á plötunni, gestatrommarar líta við og efnileg söngkona að norðan, Halla Marín Hafþórsdóttir, syngur með í einu lagi. KK kemur síðan við sögu í tveimur lögum þar sem hann syngur, spilar á gítar og blæs í munnhörpu af sinni alkunnu snilld.

Lögin á plötunni eru úr ýmsum áttum. Tvö voru samin í æfingabúðum í Borgarfirði á meðan Hafið blátt var samið á níunda áratugnum af Ármanni og Þorgeiri Tryggvasyni.

„Við grófum upp gamalt lag sem við aldursforsetarnir tveir sömdum á sokkabandsárum okkar. Þetta er elsta lagið á plötunni,“ segir Ármann.

Plötunni verður fylgt eftir með tónleikahaldi í sumar. Fyrst verða útgáfutónleikar í Íslensku óperunni á laugardaginn og viku síðar halda Ljótu hálfvitarnir aðra útgáfutónleika í Ýdölum í Aðaldal. freyr@frettabladid.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.