Fótbolti

Drogba byrjar gegn Brasilíu á morgun

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Drogba í fyrstu umferðinni, gegn Portúgal.
Drogba í fyrstu umferðinni, gegn Portúgal. AFP
"Það kæmi ekki á óvart ef Didier Drogba byrjaði leikinn gegn Brasilíu," segir Sven Göran Eriksson, þjálfari Fílabeinsstrandarinnar. Liðin mætast á morgun í stórleik dagsins. Drogba byrjaði ekki leikinn gegn Portúgal en kom inn á sem varamaður. Hann var ekki í sínu besta formi en gæti verið lykillinn að leik sinna manna ef þeir ætla að stríða Brössunum. Salomon Kalou segir að styrkleiki Fílabeinsstrendinga felist í sóknarleik og þar sem veikleiki Brassa sé vörnin henti það vel. "Norður-Kórea varðist vel og pirraði Brasilíumenn. Þeir sýndu gott fordæmi." "Þegar þú spilar við lið sem er betra en þú verðurðu að stoppa leik þeirra og nýta svo styrkleika þína," sagði Kalou.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×