Fótbolti

Paragvæ sigraði Slóvakíu

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Paragvæ fagna marki gegn Ítölum fyrr í keppninni.
Paragvæ fagna marki gegn Ítölum fyrr í keppninni.
Paragvæ sigraði Slóvakíu 2-0 í fyrsta leik dagsins en liðin leika í F-riðli. Bæði lið gerðu 1-1 jafntefli í sínum opnunarleikjum gegn Nýja-Sjálandi og Ítalíu. Fyrsta mark leiksins kom á 27. mínútu en þá gaf Lucas Ramon Barrios góða stungusendingu á Enrique Daniel Vera sem kláraði færið snyrtilega í fjærhornið. Glæsilegt mark. Þeir bættu svo við seinna markinu undir lokin en á 86. mínútu komst Paragvæ í 2-0 og þar var að verki Cristian Riveros sem skoraði með góðu skoti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×