Lífið

Stjörnumódel sýna einkennisklæðnað í kvöld

Etienne De France með Elmu og Rebekku. Mynd / Anton Brink
Etienne De France með Elmu og Rebekku. Mynd / Anton Brink

„Ef stjórnmálamenn hafa viljann til þess þá er lest betri kostur en almenn umferð," segir franski listamaðurinn Etienne De France sem hefur staðið fyrir listagjörningi á vefnum þar sem hann hefur hannað lest sem á að ganga á milli Keflavíkurflugvallar til BSÍ í Reykjavík.

Verkefnið kallast Icelandtrain eða Íslandslest. Almenningi gefst kostur á því að fara inn á heimasíðu lestafyrirtækisins og leggja teina með músasmelli.

Nú hefur Etienne gengið enn lengra í þessu verkefni og hefur hannað einkennisklæðnað á væntanlega starfsmenn lestarinnar. Honum til aðstoðar er fatahönnuðurinn Elma Bachmann og tónlistarkonan Rebekka B. Björnsdóttir.

Meðal fyrirsætna sem munu sýna hönnun listamannsins eru Högni Egilsson, söngvari hljómsveitarinnar Hjaltalín og Elsa María Jakobsdóttir sem var dagskrágerðarkona í Kastljósi.

Etienne kemur sjálfur frá París þar sem neðanjarðarlestir er daglegur hluti af tilveru borgarbúa ólíkt því sem gerist á Íslandi.

„Lestir eru góðar fyrir umhverfið enda menga þær minna og draga úr umferð. Þó svo verkefnið gæti verið dýrt til að byrja með þá væri lestin hagkvæmari til lengri tíma," segir Etienne.

Tískusýningin hefst klukkan 21:00 í Listasafni Íslands í kvöld. Verður öllu til tjaldað enda er Etienne frá höfuðborg hátískunnar og ætlar að standa undir nafni í kvöld.

Hægt er að fara á heimasíðu lestafyrirtækisins hér og leggja teina. Svo má fræðast frekar um listamanninn hérna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.