Fox News fer í fluggír út af íslensku fálkamyndinni 5. maí 2010 06:00 Fjaðrafokið á fullu. Fox News-fréttastöðin birtir ítarlega frétt um íslensku heimildarmyndina Feathered Cocaine en í myndinni kemur fram að Osama Bin Laden búi í góðu yfirlæti í Íran og skemmti sér við fálkaáhugamálið sitt.Nordicphotos/getty
Íslenska fálkamyndin Featherd Cocaine hefur vakið mikla athygli í Bandaríkjunum. Aðalpersóna myndarinnar segir hryðjuverkaleiðtogann Osama Bin Laden búa í Íran í góðu yfirlæti. Vefsíða bandarísku fréttastöðvarinnar Fox News fjallar ítarlega um íslensku fálkamyndina Feathered Cocaine eftir þá Þorkel Harðarson og Örn Marinó Arnarson. Fox hefur löngum verið þekkt fyrir fremur þjóðernissinnaða fréttamennsku og það er því vatn á myllu þeirra að í íslensku heimildarmyndinni er upplýst að Osama bin Laden, sem er efstur á lista yfir eftirlýsta menn í heiminum, búi í góðu yfirlæti í Íran og er verndaður af þjóðvarðliði landsins. Bandaríkin og Íran hafa eldað grátt silfur að undanförnu vegna ágreinings um kjarnorkuvopnaáætlanir og uppljóstrun Íslendinganna verður eflaust síst til þess að draga úr spennu á milli landanna. Fox fjallar ítarlega um heimildarmyndina og rifjar upp að því hafi verið haldið fram af vestrænum yfirvöldum að Osama búi í dimmum helli í Afganistan við stöugan ótta um yfirvofandi árás frá bandamönnum. „Sú mynd er hins vegar hrakin af aðalpersónu heimildarmyndarinnar Feathered Cocaine, Alan Parrot. Hann segir Osama vera mikinn áhugamann um fálka, hann búi í góðu yfirlæti í Íran, vakni í þægilegu rúmi á hverjum morgni, sé með lífverði frá írönskum stjórnvöldum og heilbrigður á bæði líkama og sál.“ Frétt Fox hefur vakið nokkra athygli og aðrir stórir fjölmiðlar hafa tekið hana upp. Fox ræðir í kjölfarið við Parrot og hann segist hafa rakið slóðir Osama með því að merkja þá fálka sem leiðtogi Al Kaída notaðist við. Parrot mun síðan hafa látið bandarískum stjórnvöldum þessar upplýsingar í té en þau hafi aldrei haft samband. „Minn heimildarmaður hefur hitt Osama nokkrum sinnum, nú síðast 2008,“ segir Parrot í viðtali við Fox.com. Fréttastofa Fox ræddi í kjölfarið við Robert Baer, fyrrum CIA-fulltrúa og manninn sem persóna George Clooney í kvikmyndinni Syriana er byggð á. Hann staðfestir sögu Parrots í heimildarmyndinni og bendir á máli sínu til stuðnings að fálkasalan sé ein helsta tekjulind Al Kaída. Richard Clarke í hryðjuverkadeild CIA viðurkennir að þrívegis hafi þeir haft vitneskju um hvar Osama bin Laden væri, í öll skiptin var hann að kaupa eða selja fálka í Íran. Alan Parrot segir loks í viðtalinu að hann sé ekki stjórnmálamaður. „En það er sorglegt hversu lítið bandarísk stjórnvöld hafa hlustað á fólk sem veit hvar mesti hryðjuverkaleiðtogi heims er.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Lífið Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið Fleiri fréttir Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Sjá meira